Guðbjörg Arnardóttir

Monday, August 27, 2007

Fyrsti dagurinn


Þá er fyrsti skóladagur Freys runninn upp og er hann farinn með skólabílnum. Ég sit hér og hálf titra, hugsa upp öll óhöppin og allt það sem getur komið fyrir hann í skólanum. Alla stóru strákana sem stríða honum. Eða ef hann verður eins og við afhendingu stundaskrár þá þarf ég frekar fyrr en seinna að mæta vegna agabrota. Jæja, ekki þýðir að velta sér of mikið upp úr hvað og ef. Hann virtist hins vegar fremur slakur yfir þessu þó var erfitt að sofna í gær. Í morgun var jafn auðvelt fyrir hann að fara á fætur eins og hann væri á leið í spennandi ævintýraferð. Morgunmaturinn gekk vel og ég kvaddi hann með bros á vör, sjáum hvað þetta endist lengi. Ég skelli hér inn mynd af drengnum á leið í skólann og ef vel er að gáð má sjá götin í neðri gómi þar sem áður voru tennur.

1 Comments:

  • At 3:25 PM, Anonymous Anonymous said…

    Vaaaá, myndarlegur!! Vona að allt hafi gengið vel. Og maður þarf ekki að gá neitt sérstaklega vel til að sjá gjánna í neðri góminum á barninu!

     

Post a Comment

<< Home