Ullarbrúðkaup
Ég hvet alltaf brúðhjón sem ég gef saman til að halda upp á brúðkaupsdaginn, eins og þeim hentar. Það þarf ekki að vera hótelgisting og þriggja rétta máltíð í hvert skipti. Mörg þessara afmæla eiga sitt þema eða tákn og sumir vilja nýta sér það og gefa gjafir eða gera eitthvað sem tengist þessu þema. Við hjónin áttum í gær , 15. júlí, 7 ára brúðkaupsafmæli og það kallast ullarbrúðkaup. Ég var búin að ákveða að koma eiginmanninum á óvart og gefa honum einhvers konar ullargjöf en svo bara gleymdi ég því og ekki leit út fyrir að neitt yrði sésrstakt við daginn og ekkert um ull því slíkur var hitinn úti. En oft er séð fyrir hlutunum á skemmtilegan hátt. Bóndinn á næsta bæ ákvað að drífa í því að smala og rýja hjá sér og það þýddi auðvitað að hann smalaði okkar kindum líkum svo við gætum losað þær við ullina. Það var þá ekki um annað að ræða en bretta upp ermarnar og rýja. Svo við hjónin enduðum daginn í fjárhúsinu, klippurnar á fullu og ullarstæðan fyrir utan vitnaði um afrek dagsins, aldrei áður höfðum við rúið. Þetta verður erfitt að toppa og eftirminnilegur brúðkaupsdagur.


1 Comments:
At 8:54 AM,
Anonymous said…
Hjartanlega til hamingju með árin sjö. Það var nú aðeins öðruvísi veður í gær heldur en 15. júlí fyrir 7 árum, það verður nú að segjast :) Og skemmtileg tilviljun að lenda í kindastússi á ullarbrúðkaupsdaginn! Vonum að skjáturnar fái ekki sjö-ára-kláðann eftir rúninguna, har har har. Það er aldrei að vita nema við afmælissystirin verðum á ferðinni í næstu viku. Nema ekki á mánudaginn auðvitað, þá verðum við uppteknar :)
Post a Comment
<< Home