Guðbjörg Arnardóttir

Sunday, July 29, 2007

Á rúntinum

Það var annasöm helgi þar sem við skelltum okkur á ættarmót í Skorradal, voða gaman. Ég skaust reyndar á Laugarvatn og gifti þar á laugardeginum. Við tókum snemma saman á sunnudag, fór til að skíra. Ég gerði hins vegar Hreini þann grikk að áður en við fórum tók ég lyklana af pabba bíl til að athuga hvort nokkuð væri af dóti í honum frá okkur. Síðan setti ég lyklina í vasann og obobobb, við keyrðum heim. Þegar við vorum komin að skíðaskálanum í Hveradölum fatta ég klúðrið. Þannig að Hreinn keyrði mig á Selfoss, hitti Elfu við Þingvallaafleggjarann og Ásrún fór í bústaðinn til hennar. Þá hélt Hreinn áfram og aftur í Skorradalinn, drakk kaffi og fór aftur heim, var komin heim um fimm. Úff enginn smá rúntur það :-( En allir komu heilir heim og við sátt við skemmtilega helgi.

Tuesday, July 24, 2007

Afmæli

Mér datt í hug að láta vita af því að ég yrði heima á afmælisdaginn minn, 31 árs. Gerði hitt og þetta mis girnilegt. Fyrst leit út fyrir að þetta yrði eins og í mynd nokkurri þegar kræsingarnar biðu en engin kom. Svo var fullt hús og partýið stóð til hálf ellefu. Þau sem síðust komu og tolldu lengst fengu ný veiddan og grillaðan silung úr Veiðivötnum. Hreinn sannfærðist enn frekar um hvers vel hann væri giftur þegar ég sendi hann inn í Veiðivötn, það vantaði fisk fyrir afmælið. Hann stóðst væntingar og nóg var af silungi sem rann ljúflega niður.
Jæja, þá er það flikka svolítið upp á heimilið.

Tuesday, July 17, 2007

Bjólfell



Bjólfell og nágreni varð fyrir valinu í okkar árlegu brúðkaupsgöngu. Fórum sömuleiðis í Oddagljúfur, þar sem Oddi átti á árum áður skógarítök. Ælta mér að reyna eins og ég get að sanna það að Oddi eigi enn rétt á ítökum og þá aðallega hvað varðar til afnota. Þetta er leynd paradís í nágreni Heklu, í gömlum birkiskógi og mosavöxnu hrauni. Þetta var snilldar ganga.

Monday, July 16, 2007

Ullarbrúðkaup

Ég hvet alltaf brúðhjón sem ég gef saman til að halda upp á brúðkaupsdaginn, eins og þeim hentar. Það þarf ekki að vera hótelgisting og þriggja rétta máltíð í hvert skipti. Mörg þessara afmæla eiga sitt þema eða tákn og sumir vilja nýta sér það og gefa gjafir eða gera eitthvað sem tengist þessu þema. Við hjónin áttum í gær , 15. júlí, 7 ára brúðkaupsafmæli og það kallast ullarbrúðkaup. Ég var búin að ákveða að koma eiginmanninum á óvart og gefa honum einhvers konar ullargjöf en svo bara gleymdi ég því og ekki leit út fyrir að neitt yrði sésrstakt við daginn og ekkert um ull því slíkur var hitinn úti. En oft er séð fyrir hlutunum á skemmtilegan hátt. Bóndinn á næsta bæ ákvað að drífa í því að smala og rýja hjá sér og það þýddi auðvitað að hann smalaði okkar kindum líkum svo við gætum losað þær við ullina. Það var þá ekki um annað að ræða en bretta upp ermarnar og rýja. Svo við hjónin enduðum daginn í fjárhúsinu, klippurnar á fullu og ullarstæðan fyrir utan vitnaði um afrek dagsins, aldrei áður höfðum við rúið. Þetta verður erfitt að toppa og eftirminnilegur brúðkaupsdagur.

Friday, July 06, 2007

Ég er hérna

Ég lít enn á tölvuna og gef nú skýrslu yfir þetta og hitt ef það er einhvern sem enn laumast hér inn. Við erum búin að vera mikið í fríi enda kærkomið eftir miklar annir undanfarið. Við drifum okkur til Kaupmannahafnar með mömmu og pabba, Elfu systir og hennar Frey. Þetta var rosa fín ferð, allir í stuði og voða gaman. Algjör upplifun fyrir krakkan, þó Freyr hafi verið að koma þarna í annað sinn. Við vorum síðan nokkra daga heima, náði að þvo og þvo enda vantaði ekki þurrkinn. Þá var það ferð innanlands næst á dagskrá. Fórum vestur og vorum í bústað í Flókalundi. Það var ekki síðra en allt öðruvísi. Tengdapabbi var með okkur, við skoðuðum alveg fullt af perlum Vestfjarða. Veðrið lék við okkur eins og aðra landsmenn. Þetta voru frábærir dagar. Nú erum við komin heim á ný, gsm samband í öllum hornum og eins og sést netið komið í blóðið á ný.
Verðum að mestu heima í júlí, utan stuttra skreppitúra til vina og ættingja. Kíkiði endilega í kaffi.