Þórsmörk
Mér finnst alveg nauðsynlegt að fara í Þórsmörk amk. einu sinni á ári. Nú er sá tími og heldur betur. Eginmaðurinn er orðinn svo settlegur að hann er kominn í Rotary og í gær var ferð í Þórsmörk, við fórum og gróðursettum og svo var grill. Krakkarnir fóru í nýju vaðlaugina í Húsadal og svo sofnuðu þau sæl og ánægð í rútunni á leiðinni heim.
Í dag förum við aftur í Þórsmörk og nú gistum við. Það átti að vera vinnu- og fræsðsluferð með FÍ en það var ekki nógu góð þátttaka svo það verður bara minni vinna og meira gaman. Þórsmörk er alltaf paradís á jörðu. Hlakka til.

1 Comments:
At 2:53 PM,
Anonymous said…
En frábært! Ég fór nokkur sumur í röð og fannst alveg nauðsynlegt að gera það árlega en eftir að ég flutti norður hef ég ekki komið í Þórsmörk. Kannski verður það í sumar, hver veit..
Kv.
Sigga G
Post a Comment
<< Home