Guðbjörg Arnardóttir

Wednesday, May 09, 2007

Gúff, ég er alveg sú lélegasta

Já, já, það mætti halda að allur vindur hefði verið úr frúnni eftir Húsavík. Það er þó ekki svo, miklu fremur leti um að kenna og bloggleiða. Horfi oft á bloggið og er að fara að skrá mig inn en þá finnst mér ég ekkert hafa að segja og nenni ekki að skrifa um ekki neitt, samt er ég að því núna. Jæja, síðustu viku hef ég verið trúnaðarmaður samræmdra prófa á Hellu og setið yfir unglingunum sem hamast sveitt yfir prófunum. Þau eru dugleg þessar elskur. Ég fór að hugsa að ég man enn vel eftir því þegar ég tók samræmdu prófin, er ég þá ekki mjög ung? Það sem mér þótti skrýtnast af öllu var að ég fékk smá próflöngun í magann, það hélt ég að væri ekki hægt. Ég ætla mér nú samt ekki að setjast á skólabekk, enda hvarf löngunin með sjálfstraustinu þegar ég las yfir prófin og úff, ég gæti svo mikið langt því frá tekið samræmt próf með sóma í dag, það skelfir mig svolítið.
Jæja, júró á morgun og kosningar um helgina. Spurði frænku mína í dag hvað hún ætlaði að kjósa, ekki vissi hún það en sonur minn þurfti ekki að hugsa sig lengi um og hann ætlar að kjósa Eirík Hauksson. Ef hann væri einhver staðar á lista þá væri ég ekki enn að velta hlutunum fyrir mér. Ég hlakka til að sjá gamla sjarmann á sviðinu á morgun, ég man hvað ég var roslega skotin í honum þegar hann var að slá í gegn með Gleðibankann og Módel, ég á einhvers staðar eiginhandaráritin síðan þá. Mér finnst hann alveg mega töffari! Come see the show!

1 Comments:

  • At 11:48 AM, Anonymous Anonymous said…

    Já mér finnst það ekki skrítið... Þetta obsession fyrir Eika Hauks... gengur víst í erfðir.... Helduru að það sé langt í að freyr láti Ásrúnu hringja í hann og bjóða honum í heimsókn.... til dæmis jólaföndur.... :0)

    kveðja úr reykjavíkinni í sveitasæluna....

     

Post a Comment

<< Home