Guðbjörg Arnardóttir

Sunday, May 27, 2007

Hvítasunnuhelgi


Það vantaði bara hjónavígsluna upp á að ég sinnti öllum hefðbundum kirkjulegum athöfnum. Hvítasunnan hefur því verið athafanhátíð eins og hátíðir kirkjunnar ættu að vera. Börnin komu foreldrum sínum skemmtilega á óvart í fermingarmessu í morgun. Anna Rut frænka þeirra var að fermast hjá mér í Odda. Tengdapabbi var harður á því að taka þau með sér í messu þrátt fyrir að ég væri að messa og pabbi þeirra við kórsöng á loftinu. Afi þeirra vissi greinilega að þeim væri treystandi og gekk það eftir, ekki múkkaði í blessuðum börnunum. Í lok messunnar fengu þau mynd af sér með mömmu sinni eins og fermingarbörnin og var það auðsótt mál enda stolt mamma sem fer að draga börnin oftar í messu ef það gengur svona vel áfram. Í veislunni hjá Önnu Rut var hins vegar kyrrsetunni lokið og þá mátti hlaupa.

Thursday, May 24, 2007

Hvítasunnuhret

Veðrið var svo gott í byrjun maí en svo fór aftur að kólna, fjöllin að hvítna á ný og ég leit á dagatalið. Missti ég af sumrinu og er komið haust? Nei, þetta kemur allt og vona ég að veðrið verði skaplegt nú um helgina, svo ég getið staðið úti með fermingarbörnum hvítasunnudagsins. Helgin verður þétt setin og ekkert um ferðalög, enda ágætt að vera heima hjá sér. Garðurinn bíður eftir að ég fari að snyrta hann til, mér hefur hingað til verið of kalt til að nenna drífa mig út. Mér finnst gaman í garðinum en ekki þegar ég þarf að sinna því með lopavettlinga og hor í nös. Jæja, góða helgi og farið varlega!

Wednesday, May 09, 2007

Gúff, ég er alveg sú lélegasta

Já, já, það mætti halda að allur vindur hefði verið úr frúnni eftir Húsavík. Það er þó ekki svo, miklu fremur leti um að kenna og bloggleiða. Horfi oft á bloggið og er að fara að skrá mig inn en þá finnst mér ég ekkert hafa að segja og nenni ekki að skrifa um ekki neitt, samt er ég að því núna. Jæja, síðustu viku hef ég verið trúnaðarmaður samræmdra prófa á Hellu og setið yfir unglingunum sem hamast sveitt yfir prófunum. Þau eru dugleg þessar elskur. Ég fór að hugsa að ég man enn vel eftir því þegar ég tók samræmdu prófin, er ég þá ekki mjög ung? Það sem mér þótti skrýtnast af öllu var að ég fékk smá próflöngun í magann, það hélt ég að væri ekki hægt. Ég ætla mér nú samt ekki að setjast á skólabekk, enda hvarf löngunin með sjálfstraustinu þegar ég las yfir prófin og úff, ég gæti svo mikið langt því frá tekið samræmt próf með sóma í dag, það skelfir mig svolítið.
Jæja, júró á morgun og kosningar um helgina. Spurði frænku mína í dag hvað hún ætlaði að kjósa, ekki vissi hún það en sonur minn þurfti ekki að hugsa sig lengi um og hann ætlar að kjósa Eirík Hauksson. Ef hann væri einhver staðar á lista þá væri ég ekki enn að velta hlutunum fyrir mér. Ég hlakka til að sjá gamla sjarmann á sviðinu á morgun, ég man hvað ég var roslega skotin í honum þegar hann var að slá í gegn með Gleðibankann og Módel, ég á einhvers staðar eiginhandaráritin síðan þá. Mér finnst hann alveg mega töffari! Come see the show!