Guðbjörg Arnardóttir

Tuesday, April 03, 2007

Ísland til sölu, kostar eina tölu

Ég man þegar ég heyrði það nefnt í fyrsta sinn að einhver væri að selja Ísland, það var í viðtalsþætti hjá Hemma Gunn. Ég fékk nett áfall barnið, er hægt að selja Ísland og hver kaupir og hvað verður gert við landið? Með árunum áttaði ég mig á því að viðkomandi var í ferðamannabransanum og ætlaði að markaðsetja Ísland sem vænlegan kost að ferðast til. Í fréttunum í morgun var hin margumrædda deiliskipulagskosning gagnrýnd. Ég er nú orðið soldið pirruð á þessu öllu, þetta er orðið að einhverri rosa dramatík, Össur Sk. tók jafnvel svo sterkt til orða í Kastljósinu í gær að þessi kosning hafi snúist um alla stóriðju í landinu, já, einmitt eins og Hafnfirðingar einir stjórni því. Jæja, það sem stakk mig í morgun var frétt um áhyggjur þeirra sem telja nú vilji erlendir fjárfestar síður koma til Íslands og fjáfesta því fólkinu í landinu gæti dottið í hug að hafa áhrif á hvað verður gert hér eða byggt. Æi, æ er hó.., (nú er mér heitt í hamsi og ekki sæmir að halda áfram með þetta orð, nota frekar eitthvað annað) gleðikonan verðfallin, er hún ekki lengur jafn gleið og opin, til í tuskið og komnar á hana hömlur? Algjörlega ópólitíkst held ég að við þurfum að slaka á, anda rólega fram yfir kosningar öll sem eitt.

1 Comments:

  • At 2:29 PM, Anonymous Anonymous said…

    Já Guðbjörg mín, það er margt skrýtið í kýrhausnum. Og ef það er eitthvað sem ég skil ekki þá er það Samfó í Hafnarfirði. Þeir eru svo agalega ánægðir með sig núna að það kemur mont útum eyrun á þeim! Ánægðir með hvað? Jafntefli í kosningu sem setti bæinn á annan endann en skipti svo þegar upp var staðið engu máli því það er hægt að stækka álverið hvort eða er? *kjánahrollur*

     

Post a Comment

<< Home