Gleðilegt sumar
Óska ykkur gleðilegs sumars og þakka veturinn öll sömul. Við fögnuðum sumrinu svo sannarlega hér í Odda. Freyr hélt upp á 6 ára afmælið sitt fyrir fjölskylduna. Búið var að plana grill, hammara og pylsur. Svo var þetta líka sumarblíðan, grilllyktin í loftinu, fuglasöngur á hverri grein, hlaupandi og hlæjandi börn um allan garð og ánægðir veislugestir. Er nokkuð yndislegra, spyr ég eins og afmælisbarnið?


1 Comments:
At 1:12 PM,
Gunnur said…
Til hamingju með drenginn!!
Ótrúlegt að þessi litlu kríli okkar séu komin á skólaaldur...
Bestu kveðjur á Odda ;)
Post a Comment
<< Home