Guðbjörg Arnardóttir

Sunday, April 01, 2007

Fjölgun í Odda

Nei, alls ekki frúin :-)
Bóndanum brá heldur betur í brún áðan þegar hann fór í fjárhúsið að líta eftir. Kindurnar hafa verið úti við undanfarið og þegar hann leit yfir hópinn sá hann þá ekki eina með tvö lömb. Viðvaningar eins og við höfðum ekki tekið eftir að ein þeirra væri þykkari, vömbin farin að síga og örugglega fleiri ummerki. Svo Hreinn kom hlaupandi í hús og tilkynnti um atburðinn, ég hikaði í ljósi dagsetningarinnar og ætlaði ekki að hafa mig að fífli og hlaupa apríl en hann sór að ekki væri um neitt gabb að ræða. Börnin voru því drifin í gallana og öll út að sjá. Þetta var alveg stórkostlegt, allt svo spennandi fyrir okkur, svo nýstigin af mölinni. Börnin upprifin en þó var ekki allt fallegt því eitt lamb til viðbótar fundum við lífvana, svona er gangur lífsins í sveitinni. Það er því svo sannarlega farið að vora í Odda þó líklega sé nokkur bið í næstu lömb. Farfuglarnir fögnuðu einnig með okkur og mikið er dásamlegt að heyra fuglasönginn á ný. Vorið er minn tími, vonandi að það gefi ekki undan öllum duttlungum vetrarins sem ég treysti ekki að sé dauður úr öllum æðum.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home