Guðbjörg Arnardóttir

Tuesday, April 03, 2007

Enn af undri lífsins



Við erum alveg ofandottin yfir sauðburðinum, enda nýgræðingar í bransanum. Fylgdumst á mánudagsmorgun með einn bera tvö lömb. Alveg stórkostlegt, nú þurfum við helst að fara tvisvar á dag í fjárhúsið að sjá lömin sem nú jarma fjögur í fjárhúsinu. Braggast vel og eru farin að skoppa um.

2 Comments:

  • At 2:25 PM, Anonymous Anonymous said…

    Og bera þær allar hjálparlaust eða hafið þið þurft að slíta úr þeim eitthvað? Gengur vel að koma lömbunum á spena? Eruð þið farin að setja þær út eða eru þær kannski með gerði sem þær geta valsað í yfir veturinn? Heyrðu sko, ég verð eiginlega að fara að koma og taka þetta úr hjá ykkur ...

     
  • At 2:48 PM, Anonymous Anonymous said…

    Til lukku með lömbin. Ég hitti einmitt eina nágranna konu ykkar um daginn og hún sagði mér að þið væruð með þennan líka mikla búskap!!
    Ég get nú ekki annað en hlegið af hrakföllum þínum þegar rafmagnslaust var! Segir þetta manni ekki eitthvað? Það er allaveganna ekki eins oft rafmagnslaust í dag eins og áður!!
    En vonandi hittumst við nú 18. mai!
    Þangað til þá! Hafið það sem best í sveitinni!!!
    Kv.
    Berglind 10. ÁKH (6.SE)

     

Post a Comment

<< Home