Annríki
Páskarnir voru þéttsetnir með athöfnum sem gengu nokkuð vel. Á milli þeirra náðu þó fjölskyldan að skreppa í bústaðinn, veiði og fermingaveislu. Ég hef haft í hinu og þessu að snúast, svo mikið að ég hef varla haft tíma til að fara bloggrúnta. Ofan á venjubundin störf hefur hlaupið í mig vorhreingerningaræði, eða endurröðunaræði, að koma smá skipulagi á drasl. Ekki komið ár í húsinu og mörg horn er strax farin að fyllast af drasli. Þetta er þessa stundina áhugaverðara en tölvuyfirseta.


0 Comments:
Post a Comment
<< Home