Prestastefna
Ég er komin heim í kuldann. Þegar við lentum á Reykjavíkurflugvelli í gær var þetta eins og að koma frá Spáni til Íslands. Það var ógurleg blíða á Húsavík, þó við höfum ekki fengið að njóta hennar nema í kaffipásum. Þessi fyrsta Prestastefna mín var áhugaverð að mörgu leyti. Alveg þótti mér frábært að hitta þarna kollega mína og skólasystkini sem ég hef ekki séð lengi. Best var að deila herbergi með henni Siggu minni, takk fyrir síðast Sigga, ég svaf ekki eins vel í nótt og hinar tvær enda mun þrengra :-) Alveg makalaust hvað það er hægt að hlæja mikið að engu og nú veit ég að Sigga hlær heheheh.
Hitt er svo annað hvernig umræðan fór. Fjölmiðlar eru ekki í vandræðum með að elta uppi það sem þeim hentar. Vissulega var skrefið ekki stigið til fulls og sjálf hefði ég kosið milligönguleið sem þó var ekki hafnað heldur sett í nefnd. Alla vega var stigið hálft hænuskref áfram og það meira en nokkur önnur kirkja á vesturlöndum. Hvað um það þolinmæði margra er á þrotum, ég er viss um að þetta kemur en það þarf enn smá tíma í viðbót. Margt annað var rætt en það nennir engin að tala um það. Jæja, helgin framundan og vona að þið njótið hennar.
Ljósbláar kveðjur á Krókinn :-) :-)