Sæmundur fróði
Laugardagurinn var annasamur og sunnudagurinn tekin snemma með guðsþjónustu í Þykkvabænum. Eldri barnakórinn söng og var þetta hin notalegasta stund. Eftir það dreif sveitavargurinn sig í höfuðborgina, borg óttans. Mikið lagt á sig því veðrið var ekki hið notalegasta. Við skelltum okkur í Möguleikhúsið að sjá leikrit sem byggt er á þjóðsögum um Sæmund fróða Sigfússon. Það var að sjálfsögðu ekki hægt annan en að fjölskyldan í Odda fjölmennti til að sjá verkið. Við urðum svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum því það var virkilega skemmtilegt. Nú er stefnan að fá leikritið heimsent í sumar og leyfa fleiri Rangæingum njóta góðs af þessu skemmtilega verki. Það er ekki laust við að montið hafi aðeins rokið upp á sýningunni, verandi í fótsporum þessa sekmmtilega og fróða manns. Skyldi ég ekki alveg standa honum jafnfætis he he he? Frey þótti þetta allt saman mjög skemmtilegt og ætlar við fyrsta tækifæri að leita að hinu og þessu sem minnst var á að væri í Odda. Ekki var veðrið betra á leiðinni heim og sem betur fer sofnaði ég annars hefði ég líklega farið á taugum.


0 Comments:
Post a Comment
<< Home