Lélegasti bloggari í heimi
Ég er að hugsa um að setja auglýsingu í útvarpið, þar sem tilkynnt verður um lélegasta bloggara í heimi, titilinn hlýt ég og svo kemur mikið klapp á eftir. Ég er ótrúlega löt að setja inn eitthvað, er lítið fyndið og meira dagbókarfærslur í skeytastíl. Alls ekki nenni ég að fara að tjá mig um pólitík eða önnur viðkvæm málefni. Þetta endar kannski með því að bloggið mitt fjari út og verði að steingervingi.
Um helgina skruppum við hjónin til London með kirkjukórnum. Þetta er var rosalega skemmtileg ferð, mikið labbað og enn meira hlegið. Allt eins og það á að vera. Börnin voru á flækingi hér og þar þó mæddi mest á Úu þeirra og nafnanum sem brugðu sér í bústaðinn með börnin. Freyr bað mig nokkrum sinnum um það fyrir helgina að segja sér aftur og aftur pössunarröðina. Svo er draumur hans að allir sem voru að passa hittist í Odda. Kannski bara í afmælinu hans :-) Dagurinn í dag er fallegur, vor í lofti og fuglasöngur að glæðast á Rangárvöllunum, allt í rétta átt.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home