Gullkorn í sundi
Ég hef smá áhyggjur af því að mér sé að mistakast í barnauppeldinu, þarf alla vega að vera á varðbergi varðandi framtíðarheill baranna. Við skelltum okkur í sund seinni part fimmtudagsins mér tókst þó nokkuð vel upp með það en þegar ég vildi fara upp úr þá maldaði Freyr í móinn. Ég sagðist vera orðin svöng og vildi komast að borða þá sagði Freyr þessa fleygu setningu: ,,Mamma þú hefðir átt að fá þér tvo eða þrjá bjóra áður en við fórum". Úff, ég blánaði og roðanði en taldi það mikla mildi að ekki voru nema tveir unglingar í pottinum og vona ég að þau hafi ekki heyrt þessi ummæli. Ég náði þó börnunum upp úr, búið var að lofa bókasafninu í leiðinni en það var rúmur hálftími í opnun þess svo við skelltum okkur inn á veitingastað og fengum okkur samloku, kokteilsósu og franskar. Það er skemmst frá því að segja að börnin algjörlega duttu ofan í kokteilsósuna og Ásrún át hana eina og sér. Freyr kryddaði diskinn sinn svo hann gæti dýft hverri franski kartöflu í krydd og svo sósu. Bara grænmeti í matinn eftir þetta :-) Það góða er þó að við fórum svo á bókasafnið og endaði Freyr á því að fá sér nokkrar fræðibækur því hann elskar færðibækur eins og hann segir og vona ég því að einn daginn finni hann góða fræðibók sem fræði hann um næringargildi bjórsins og þeirri áhættu sem fylgir neyslu hans á fastandi maga. Sömuleiðis að hann uppgötvi áhrif hertrar fitu sem umlykja frönskurnar, kýttið í mæjóensinu og allt MSG-ið sem veður upp í kryddinu því mamma hans er svo greinilega ekki að standa sig


1 Comments:
At 9:03 AM,
Anonymous said…
Þetta er nú eitthvað annað í Greninu. Ég fékk mér nokkra sopa af pilsner á meðan ég var að gera sósuna með lærinu í gær og ég veit ekki hvert dóttir mín ætlaði! "Mamma! Ertu að drekka bjór á sunnudegi?!?"
Hún Aðalheiður mín þurrkar sér ekki um munninn í gardínur og rúmteppi!
Post a Comment
<< Home