Dásamleg helgi
Kaupmannahafnarferðin með hittingnum var alveg eðal ferð. Þetta var allt eins frábært og hægt var að hafa það. Það var hlegið endalaust og þannig að stundum var allt fyndið, þá er sko gaman. Íbúðalífið var alveg frábært og dásamlegt að geta verið svona mikið saman. Heimbankar okkar flestra kveiktu í sér um helgina, alla vega þori ég ekki að kíkja á hann eða gera upp ferðina, nema með hjartastyrkjandi við hliðina á mér: ,,Hva bara 1000 kall'', kannaksi soldið margir þannig :-) Einhverjir hér heima hafa eflaust haldið að við værum alveg í S-inu okkar þegar fregnir af óeirðum bárust til landsins. En við komum allar heilar heim og enginn lenti í steininum. Við sáum þó smá brot af friðsamlegri mótmælagöngu og þegar við vorum á leið heim á laugardagsnótt sáum við lokaaðgerðir lögreglu sem slökkti eld við Sívalaturninn, rétt við íbúðina okkar.
Auðvitað var líka gott að koma heim og knúsa kallinn og börnin en nú reyni ég að ná áttum, röddin allt of mikið eins og þegar ég var 17 að koma heima af fyrstu Þjóðhátíðinni. Þetta hlýtur allt að koma. Nú ætla ég að vera bara rosa væmin því hjartað er fullt af þakklæti fyrir frábærar vinkonur, góðan hóp, ógleymanlega helgi, fullkomna daga. Takk, takk stelpur, þið erum ein af dásamlegum gjöfum Guðs.

2 Comments:
At 8:21 AM,
Anonymous said…
Ein vinkona mín segir stundum við mig "ég er bara ég vegna þess að þú ert þú" ... ég ætla að spegla það á þig Gugga mín, yndislegust! Ég er í sama pakka, búin að láta í allan dag eins og ég muni ekki leyniorðið í heimabankann :/
At 12:06 AM,
Anonymous said…
Velkomin heim Gugga mín. Frábært að ferðin heppnaðist svona vel. Kær kveðja Ragna Björk
Post a Comment
<< Home