Guðbjörg Arnardóttir

Monday, February 05, 2007

Pestabæli

Hér erum við í áskrift af sýklum. Ásrún var send heim úr leikskólanum á miðvikudag vegna hósta og fékk á fimmtudag púst. Er hætt að hósta. Freyr, Hreinn og Ásrún skiluðu matnum sínum með uppköstum um helgina. Í dag átti Ásrún að fá aftur að fara í leikskólann en er komin með hita svo við erum heima. Ég óska eftir að losna við hálsbólu, hæsi og hósta og það í allra síðasta lagi í dag. Gat fátt gert annað á þorrablótsæfingu í gær annað en að hósta. Er þetta eðlilegt?
Það jákvæða er þó að ég get setið í stofunni og horft á fallegan Eyjafjallajökulinn í ótrúlega fallegu veðri og ef mér sýnist svo leggst ég upp í hjónarúm og býð eftir augnabliki aldarinnar; að Hekla heilsi mér með gosi, hver veit?

2 Comments:

  • At 3:30 AM, Anonymous Anonymous said…

    Heklugos uppí hjónarúmi? Vúbbídú, Hreinn er greinilega að jafna sig á pestinni!

     
  • At 1:27 PM, Anonymous Anonymous said…

    Pestabæli, hestabæli, prestabæli; láttu mig þekkja þetta allt samsaman.. Aðeins of miklar upplýsingar fyrir mig um hamfarir í hjónarúminu!
    Kveðja úr kuldanum,
    Sg

     

Post a Comment

<< Home