General
Nú erum við hjónin komin heima af generalprufunni fyrir þorrablótið. Börnin eru farin í Grímsnesið og við sjáum þau ekki fyrr á sunnudaginn. Það gekk allt að óskum og næstum of vel vegna þess að fátt klikkaði. Mikið var hlegið og fólk taldi þetta með betri atriðum sem það hafði séð, ég er ekkert að monta mig, takið eftir því :-) Ég fékk hrós og þó, frá meðhjálparnum mínum, veit ekki hvernig ég á að skilja hrósið. Hann sagði leik minn frábæran og bætti svo við að ég væri alveg á rangri hillu! Heheheh, hvað segiði um það?
Annars er þetta alveg rosalega gaman og ég hlakka hrikalega til á morgun, poj poj !
Annars er þetta alveg rosalega gaman og ég hlakka hrikalega til á morgun, poj poj !


2 Comments:
At 3:28 AM,
Anonymous said…
Það góða við hilluna sem þú ert á mín kæra er að það er pláss fyrir fullt af öðrum flottum hlutum á henni líka :o)
Skemmtið ykkur hrikalega vel í kvöld og poj poj.
At 4:11 AM,
Anonymous said…
ohhhhh hvað ég verð veik núna að koma. Við verðum bara að kíla á þetta á næsta ári.....
Skemmtið ykkur þvílíkt vel og thu thu
Post a Comment
<< Home