Guðbjörg Arnardóttir

Wednesday, February 28, 2007

Sjáumst eftir helgi vinir

Jæja, þá er loksins komið að því að við vinkonurnar fáum þrítugsafmælsigjöfina okkar sem er helgarferð, bara stelpurnar og örugglega alveg frábært. Kaupmannahöfn bíður. Ég kveð í kvöld og yfir helgina og eflaust mun ég aldrei tjá um um ferð þessa hér á alnetinu.
Góðar stundir.

Monday, February 26, 2007

Ekki rugla saman tilviljun og örlögum

Ég var eiginlega komin með leið á LOST á tímabili áður titraði ég af spenningi allan mánudaginn. Þá var ég dugleg að kom auga á trúarleg stef í þáttunum. Fannst John Lock vera fyrst um sinn ímynd hinnar kristnu sálgæslu sem er til staðar þegar fólk þarfnast , ákveður ekki fyrir fólk hvað það eigi að gera, heldur styður það í skjóli og styrks æðri máttar og hjálpar því að finna sjálft eigin lausnir. Svo missti hann það þegar Boone datt með flugvélinni og dó og hann varð heltekin af því að úta á takkann. Um leið og ég sá Eko fann ég að hann hafði trúarlegan hljómgrunn og ætti skap saman með Lock og það stóð heima þegar Eko fann Biblíu og vitnaði í Jeremía spámann. Þá fyrst fór þetta alveg að keyra um þverbak með allan spenning hjá mér, ég beið eftir meira af þessu en svo týndi ég handritshöfundunum eða þeir nenntu ekki að sinna trúarstefs nördum eins og mér þar til í kvöld, ég var öll á iði. Lock var aftur mættur með sína frábæru og beinskeittu sálgæslu. Alveg magnað þegar hann og Eko börðust við að ná steinunum frá flugvélinni til að sjá lík bróðurs Eko, föður Yemi, en hvað blasti við? Gröfin var tóm! Síðar berst Eko við gott og illt, fyrirgefningu og synd, hið dökka og hið illa. Lock hafði séð ljósið og en Eko andstæðu þess og það sigraði hann, þrátt fyrir að hann hafði á örlagastundu iðrast og vitnað í 23. Davíðsálm. Hvað gerði hann rangt, hann iðraðist ekki, taldi sig ekki hafa drýgt synd og við hvern sagði hann þetta ef ekki bróðir sinn, þann eina sanna upprisna? Gerði hann rangt þegar hann drap kúgarana? Hvenær drepur maður mann og hvenær drepur ekki maður mann? Ekki rugla saman tilviljun og örlögum sagði Lock í kvöld! Ben, vondi foringi ,,hinna'', með banvæna æxlið sitt, beið dauða síns á en tveimur dögum seinn hrapar á eyjuna hans skurðlæknirinn Jack. Ben túlkar það sem útspil Guðs til hans. Stuttu seinna fær Jack leynilega beiðni þess að mistakast í aðgerðinni, fólkið þurfi breytingu, að losna undan foringja sínum. Er það koss Júdasar eða vill Ben að Jack mistakist. Hvað er tilviljun og hvað eru örlög, hverju trúir þú lesandi góður? Ég er örugglega farin að lesa langt umfram handritið, snýst ekki listin um það? Lífið leggur okkur drög að handriti á hverjum degi, við skrifum það, skrifum við það ein eða erum við aðeins meðhöfundar, hvað er tilviljun, hvað eru örlög?

Saturday, February 24, 2007

Aðgerðaleysi og þó!

Skrýtið að vera heima um helgi og engin dagskrá, ég er búin að vera hálf skrýtin í dag vegna þessa. Freyr fór þó í afmæli á Hellu og við mæðgur skruppum í sund á meðan. Hreinn fór að leika sér á vélsleðanum sínum inn'á fjöllum og örugglega mikið gaman hjá honum, ég fæ að leika mér um næstu helgi með skvísunum í Kaupmannahöfn. Það er samt ótrúlega notaleg tilfinning að vera heima og slaka á. Það er gefandi og nærandi að hugsa í kyrrð og ró og ji hvað mér finnst gott að vera í sveitinni minni á svona dögum.

Thursday, February 22, 2007

Vikan flýgur

Alltaf líða dagarnir, þægileg vika. Mánudagurinn fór í að hitta Kollu mína og hennar afkvæmi, héldum þeim við efnið hálfan daginn og gúffuðum í okkur bollum. Kvöldið fór í nefndarstörf og nú þegar þorrablótið er búið þá er það næsta nefnd, 76 árgangur heldur endurfundi í maí. Lofar góður og ekkert nema fjörið þegar við höfum loksins náð að lenda hinni fullkomnu dagsetningu og staðsetningu. Sprengidagurinn var tekin með trompi og vel það, fyrst súpa og saltkjöt hjá mömmu og nammi, nammi, slefa bara yfir lyklaborðið við tilhugsunina. Síðan var brunað í hitting og þar var önnur súpa og desert, ég var alveg tilbúin í 40 daga föstu eftir kvöldið, þar til daginn eftir :-) Öskudagurinn hress og Freyr alveg í essinu sínu að fá loksins að fara í búningi í leikskólann, búin að endurhanna búninginn sinn upp á nýtt og það er með ólíkindum hvernig ímyndaraflið virkar. Já, fimmtudagur, Hreinn að slá í gegn á Akranesi spilar Dylan fyrir Skagamenn, það hlýtur að vekja lukku? Reyndi í dag að koma heimilinu í snyrtilegt horf, úff hvað mér leiðist að eyða svo miklum tíma í tiltekt og sólin þannig að hún afhjúpar allt sem húsmóðirin óskar að hylja. Mamma og pabbi komu í eftirlit og var vel tekið á móti þeim. Þannig var vikan og svo er það helgin framundan, plönin riðluðust og ég er eins og hálf vængbrotin þegar ekki er full dagskrá alla helgina, alveg að fara á límingunum yfir að skipuleggja ekki í þaula hvern klukkutíma. Jæja, góðar stundir¨!

Thursday, February 15, 2007

Hversdagurinn

Jú, nú er þorrablótið búið. Það gekk allt vonum framar og hægt að sjá myndir af blótinu á vef Rangárþings ytra, þar má m.a. sjá myndir af sipstjóranum, getiði hver hann er? Svo er maður enn að ná að jafna sig á þessu öllu, vökunótt o.fl. Það skortir þó ekki áfram verkefnin en það er erfiðara að koma sér í hitt og þetta þegar eitthvað hægir á. Annars gengur lífið allt sinn vanavang og er það vel.

Friday, February 09, 2007

General

Nú erum við hjónin komin heima af generalprufunni fyrir þorrablótið. Börnin eru farin í Grímsnesið og við sjáum þau ekki fyrr á sunnudaginn. Það gekk allt að óskum og næstum of vel vegna þess að fátt klikkaði. Mikið var hlegið og fólk taldi þetta með betri atriðum sem það hafði séð, ég er ekkert að monta mig, takið eftir því :-) Ég fékk hrós og þó, frá meðhjálparnum mínum, veit ekki hvernig ég á að skilja hrósið. Hann sagði leik minn frábæran og bætti svo við að ég væri alveg á rangri hillu! Heheheh, hvað segiði um það?
Annars er þetta alveg rosalega gaman og ég hlakka hrikalega til á morgun, poj poj !

Monday, February 05, 2007

Pestabæli

Hér erum við í áskrift af sýklum. Ásrún var send heim úr leikskólanum á miðvikudag vegna hósta og fékk á fimmtudag púst. Er hætt að hósta. Freyr, Hreinn og Ásrún skiluðu matnum sínum með uppköstum um helgina. Í dag átti Ásrún að fá aftur að fara í leikskólann en er komin með hita svo við erum heima. Ég óska eftir að losna við hálsbólu, hæsi og hósta og það í allra síðasta lagi í dag. Gat fátt gert annað á þorrablótsæfingu í gær annað en að hósta. Er þetta eðlilegt?
Það jákvæða er þó að ég get setið í stofunni og horft á fallegan Eyjafjallajökulinn í ótrúlega fallegu veðri og ef mér sýnist svo leggst ég upp í hjónarúm og býð eftir augnabliki aldarinnar; að Hekla heilsi mér með gosi, hver veit?