Guðbjörg Arnardóttir

Wednesday, January 31, 2007

Af handbolta

Nú tala allir um handbolta. Ég get stundum orðið pirruð á því hvernig allir veðrast upp og fara að gera sér vonir um að nú gerist það, nú verðum í fyrsta sæti, alla vega öðru eða þriðja. Svo er byrjað að safna peningum og heita á og það verður bara allt vitlaust.
Svo varð ég bara sjálf alveg tjúll í gær. Gat ekki horft nema rétt á síðustu tvær mínúturnar og svo framlenginguna og ég blótaði, eftir hana. Þó stillti ég því í hóf því Freyr var vakandi hjá mér. Ég er ennþá svekkt og væri reyndar smá minna svekkt ef þetta hefðu ekki verið Danir.
Ég hlýt að jafna mig með tímanum?

Wednesday, January 24, 2007

Þorrablótsundirbúningur

Það er allt á fullu við undirbúning þorrblóts hér á Hellu, svo mikið að við þyrftum helst að fá au-pair fram yfir blót. Það eru æfingar á kvöldin og annað stúss, auk þess að sinna öðrum áhugamálum en það á þó reyndar aðallega um eiginmanninn sem sækir í frægð og frama í hljómsveitabransanum. Þeir félagar spila á Rósenberg á fimmtudag ef einhver ykkar þyrstir í Dylan. Sem betur fer á finnst börnunum foreldrar sínir ekki sérlega skemmtileg því húrra hrópum ætlar aldrei að linna þegar tilkynnt er að von sé á barnapíu, svo það er bót í máli að skilja ekki við þau grátandi á húninum.

Monday, January 15, 2007

Messufall


Messufall varð í Odda á sunnudagsmorgun. Það var ófært fólksbílnum og ég kunni ekki við að heimta akut mokstur svo þetta varð úr. Þetta er því heilmikill vetur hér á suðurlandinu, við sem vorum búin að gleyma hvernig það er að hafa snjó. Við verðum þó að passa okkur á því að vera ekki ónæm og þora ekki út úr húsi þó föl sé yfir öllu. Mér finnst þetta bara gaman og pirra mig ekki á snjónum, leiðist ekki að spóla smá í sköflum og skellti mér smá rúnt á vélsleðanum. Fékk þó leiðinda komment frá eiginmanninum um að ég keyrði eins og ke.. ætla ekki einu sinni að hafa það eftir. Ég er bara að æfa mig og fer að öllu með gát, nægur tími til að glanna.

Thursday, January 11, 2007

Ævintýri um vetur

Það getur verið ævintýrlegt að vera í sveitinni um vetur, alla vega fyrir okkur sem erum nýkomin af verndaðri mölinni. Við Freyr brutumst í skafrenningi og látum í fjárhúsið í gær til að gefa. Það er sjarmi yfir þessu verð ég að segja, alla vega þegar allt gengur vel og leiðin ekki of löng. Við vorum því rjóð í kinnum og endurnærð eftir ferðina.
Ásrún er heima hóstandi svo hún á að hvíla sig smá á leikskólanum, þetta byrjar um leið. Hún var nú ekki á því að vera skilin eftir heima, vildi fá að fara í leikskólann sinn. Jæja, rétt skaust að ná í tölvuna á skrifstofuna, sjúklingarnar, Ásrún og Hreinn, bíða heima.

Friday, January 05, 2007

Ásrún á leikskóla

Þá er hún Ásrún byrjuð á leikskólanum, byrjaði í aðlögun á þriðjudaginn. Það gengur vonum framar, eiginlega of hratt fyrir mömmu hennar alla vega. Hún á að vera allan daginn í dag og ég er hálf miður mín. Það er nú víst gott að það gengur vel. Erfiðara er fá unga manninn til að fara í regluna. Hann vill vaka á kvöldin (enginn jólasveinn sem launar lengur góða hegðum) og kúra lengur, að minnsta kosti ekki gera mikið meira en að skríða að sjónvarpinu og borða morgunmat þegar maginn er tilbúin. En hversdagurinn kallar og best að sinna því.

Tuesday, January 02, 2007

Gleðilegt ár


Gleðilegt ár öll sömul og þakka kærlega fyrir liðið ár.

Megi árið 2007 verða okkur öllum gæfuríkt.

Ég hef svo oft verið klökk og dramatísk um áramót þegar ég lít yfir liðna atburði en einhvern veginn þrátt fyrir að árið hafið verið alveg ótrúleg merkilegt þá vantar alveg í mig núna yfirþyrmandi drama vegna liðinna atburða. Það kemur kannski um miðjan janúar.