Jólasnjór
Mér finnst gaman í snjó og krúttlegt að hafa hann, alla vega ennþá. Mér finnst sjarmi yfir því að þurfa að keyra hægt og spóla smá í sköflum. Annað sem er nýtt og spennandi fyrir mér er tækjaæði húsbóndans. Hann keypti sér vélsleða í haust og hefur honum til ama ekki getað notað hann nógu mikið þangað til í gær þá var keyrt um öll tún. Mín fékk svo að prófa, fór bara stuttan hring og mjög hægt, en dje... afsakið orðbragðið var gaman. Hlakka til að fara annan hring seinni partinn í dag. Enn af aftur verð ég að hæla framtakinu jólasveinninn. Það er eins og einhver hafi stolið syni mínum og sett í staðinn dreng sem hlýðir öllu í einu orði, fer að sofa jafnvel fyrr en hann þarf, og hann meira að segja vaknar ekki endilega fyrr. Þetta er svo mikill lúxus, það er greinilegt að þetta er uppeldiaðferð sem virkar á Frey, þó er alls ekki verið að hóta honum einu eða neinu. Ásrún hins vegar hefur ekki hugmynd um hvað er á seyði og neitar með öllu að jólasveinninn gefi henni nokkurn hlut, það er konan, enda var hún viðstödd þegar jólasveinninn fór í búðina í gær og konan afgreiddi hann :-)


1 Comments:
At 2:20 PM,
Anonymous said…
þú segir satt með þessa dýrðar sveina.... en Esther Elma spurði mig; kemur jólasveinnin nokkuð með hausinn inn, eru ekki bara töfrar í höndunum hans.....
Post a Comment
<< Home