Guðbjörg Arnardóttir

Sunday, December 03, 2006

Hvert hafa daga mínir horfið?

Já, réttilega hef ég ekki látið í mér heyra nógu lengi. Ég hef nú ekki eingöngu staðið í bakstri en þó um helgina náðu baksturinn hámarki með 2 ára afmæli Ásrúnar á laugardaginn. Það var mikið gaman og Ásrún í skýjunum yfir afmælinu, pökkunum, ,,úttlaðigökunni'' og flestu öðru. Hér var eins og alltaf á afmælum margt um manninn og nú fyrst komu kostir þessa stóra húss í ljós þó ég hafi sárlega kvartað undan því á föstudaginn þegar ég gakk um herbergin með skúringafötuna að moka sandinum úr gluggakistunum eftir vindasama daga. Það er nóg framundan og næsta vika undirlögð aðventusamkomum og öðrum skyldustörfum. Það er þá bara til að líta á bjrötu hliðarnar merki um að fólk leitar eftir að fá að heyra um hina eiginlegu merkingu jólanna ekki að það fái ekki næga nærignu úr bæklingum og búðum.
Jæja, ég er á leið til messu nú kl 16. Guð veri með ykkur nú við upphaf jólaföstu

0 Comments:

Post a Comment

<< Home