Engin snjór
Snjórinn er farinn eins og hann var notalegur, nú er það grá og blaut rigningin og rauð jól framundan. Það jákvæða við það er að ég kemst þá greiðlega á milli kirkjustaði til að messa og þarf ekki að sitja föst í skafli á milli kirkna. Tíminn er alveg á harðahlaupum þessa dagana, gluggarnir á dagtölum barnanna hamast við að opnast og ég reyni eins og ég get að fylgja eftir. Veit ekki hvort það er annríki um að kenna að því að vera annars hugar frá börnunum en Freyr kallar mig ekkert annað en Guðbjörgu og ég heyri ekki mamma, Ásrún apar þetta oft eftir en hún man þó oftar eftir að kalla á mömmu sína. Ég verð að viðurkenna að mér finnst þetta ekki nógu persónulegt.


0 Comments:
Post a Comment
<< Home