Spurning um að telja gráu hárin
Muniði þegar við vorum 16 eða 13 og fannst þrítugt fólk alveg ROSALEGA gamalt. Svo einn daginn breyttust viðmiðin og við urðum þrítug og þá er aldurinn algjörlega afstæður. Ég uppliðfi í gær að litið var á mig sem gamalmenni. Ekki það að ég upplifi örugglega miklu oftar að fólki bregður við hversu presturinn er ungur. En í gær var ég með æskulýðsfund og leikskólinn kom til tals. Ég var geinilega inn í málunum svo einn strákurinn spurði hvort ég væri að vinna þar, nei það var ekki. Þá sagði einhver að ég ætti mjög líklega barn þar og strákurinn sagði: ,,Já, áttu barnabarn í leiksólanum''! Þarf ég að segja meira?


3 Comments:
At 9:16 AM,
Anonymous said…
Er ég þá að fara til Köben í mars með ömmu Guggu? :o)
At 4:13 PM,
Anonymous said…
Er ég þá orðin langamma ?
At 1:50 PM,
Anonymous said…
..ætli þetta sé 30 árin sem fara svona með okkur því þegar maður er að reyna að gellast og kaupa gloss, þá er laumað hálskremi og hrukkukremi í pokann hjá manni. Hvaða skilaboð eru það...
Post a Comment
<< Home