Guðbjörg Arnardóttir

Wednesday, November 08, 2006

Hitt og þetta

Það er hitt og þetta sem á daga hefur drifið. Við komumst loks í bíó og ekki uppselt, alla vega ekki þegar við keyptum miða. Myndin var alveg þess virði og meira en það að þurfa að koma tvær ferðir. Snilldarmynd á alla kanta. Á mánudaginn var ég með fermingarbörnunum mínum að safna fyrir hjálparstarf kirkjunnar og gekk það mjög vel, ég var ánægðust með hvað þau voru jákvæð enda eru þetta alveg frábærir krakkar. Snjórinn lét sjá sig í gær þó ekki nema lítið en það var nóg til að krakkarnir gátu rennt sér á þotum og sleða og vakti það mjög mikla lukku. Nú eru kindurnar farnar að fá af af slætti sumarsins. Hreinn reyndi að loka hrútinn af í gær en hrúturinn sættir sig ekki við svoleiðis framkomu, braut trégrind og komst í gegnum hliðið. Það þarf að taka betur á honum. Þetta er voða gaman að vesenast í þessu, þó við séum óttalega barnaleg og vitlaus en það hlýtur að koma, viljinn er alla fyrir hendi.

1 Comments:

  • At 12:53 PM, Anonymous Anonymous said…

    Sveitavargurinn glottir við tönn, eins og Skarphéðinn forðum, þegar hann les um viðskipti Hreins og hrútsins:-) Stundum halda náttúrunni engin bönd.
    Kveðjur af köldum Krók,
    Sg

     

Post a Comment

<< Home