Guðbjörg Arnardóttir

Thursday, November 02, 2006

Fór í bíó, ekki bíó

Það var skemmtilegur dagur í gær. Trölladeildin á Heklukoti opnaði formlega og fékk ég þann heiður að blessa deildina með þátttöku þeirra allra elstu, eða skólahópsins Þetta er voða fínt og hlýtur að vera rosalega skemmtilegt fyrir krakkana. Það var margt um manninn á opnu húsi á deildinni og meira að segja amma Sessa komin frá Selfossi að meta aðstæður. Eftir kraftmikinn dag var ég búin að hugsa með mér að fátt væri notalegra en skella sér í bíó, við hjónin ein. Sjá Mýrina, svo við verðum nú í takt við flesta Íslendinga sem eru búin að sjá hana og dásama. Við drifum í að elda snemma hentumst út og því miður 10 mín seinna en ég var búin að ætla mér. Búið var að ganga frá því að börnin yrðu hjá Gerði sem var mikið fagnaðefni meðal Freys og Ásrúnar. Við kvöddum og áttum í vændum heila kvikmynd og jafnvel popp án þess að vera trufluð en hvað haldiði. Það var bara UPPSELT í Selfossbíói! Ég var auðvitað svekkt og við hugsuðum okkur allar þær leiðir sem við hefðum getað vera búin að fara til að tryggja okkur miða en bjuggumst ekki við þessu. Ég var samt líka pínu glöð því ég fagna því að fólk flykkist í bíó, svo við getum nú örugglega haldið áfram að hafa bíó á staðnum. Það verður svo að koma í ljós hvort við reynum aftur eða hvort við erum búin að missa kjarkinn.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home