Guðbjörg Arnardóttir

Friday, October 06, 2006

Vikan og helgin

Vikan hefur liðið hratt enda í mörg horn að líta. Á mánudagsmorgun fórum við prestarnar í Rangárvallaprófastdæmi í Vatnaskóg ásamt fermingarbörnum okkar og tveimur fylgdarkonum. Þetta var frábærlega vel heppnuð ferð og mikið gaman hjá öllum. Þessir krakkar voru algerir englar og spennandi að hitta þau í vetur, kynnast þeim og fræða.
Í vikunni hef ég líka reynt að hitta hana Kollu mína sem nú er stödd á landinu. Síðar í dag verður gleðistund í Selfosskirkju þar sem ég fæ þann heiður að skíra strákinn hennar og Arnars, hlakka til. Sunnudagurinn er þétt setin og þau sem þyrstir í kirkjusókn geta mætt í Oddakirkju í messu kl. 11 eða Þykkvabæjarkirkju í kvöldguðsþjónustu með léttu yfirbragði kl 20:30.
Bless og góða helgi!

2 Comments:

  • At 11:59 AM, Anonymous Anonymous said…

    ...Takk fyrir fallega og persónulega athöfn fyrir strákinn okkar Oliver Darra.
    Þín Kolla

     
  • At 4:53 PM, Anonymous Anonymous said…

    Sæl sr.Guðbjörg
    það er einlæg ósk Hólabiskups að þú takir hempuna með þér norður yfir heiðar.
    Mbk,
    Sigga

     

Post a Comment

<< Home