Guðbjörg Arnardóttir

Wednesday, October 18, 2006

Til kóngsins Köben

Já, það þarf oft ekki mikinn tíma til að skipuleggja hlutina. Ætluðum í smá frí í nóvember en svo fyrir nokkru gátum við ekki beðið og erum á leið til Kaupmannahafnar á morgun. Helgarferð frá fimmtudegi fram á mánudag. Við förum hjónin og tökum Frey með okkur ásamt tengdapabba. Þetta verður örugglega rosalega fínt og gaman, hlakka mikið til. Planið er hrekkjavökuþema í Tivoli, dýragarður, heimsækja námshestana Ými og Kristínu og Atla, ásamt fleiri uppákomum. Að ógleymdu H&M sem ég ætla að gleyma mér í einhverja stund. Annars heyrði ég frá Elfu systir sem var þar í sumar og hitti mann sem fylgdi þar konu sinni eftir og sagði að H&M gengi meðal karlmanna undir heitinu Helvíti og Martröð. Já, já þeir um það!
Jæja, ferðasagan eftir helgi. Túbbinn bíður kaldur eftir mér í Köben.

2 Comments:

  • At 10:36 AM, Anonymous Anonymous said…

    Vona að þú sért að missaða í H&M núna :o)

     
  • At 4:30 AM, Blogger Gunnur said…

    Vona að þið hafið átt góða daga í höfuðborginni góðu, túbbinn hefur vonandi staðið fyrir sínu og ekki verið í takmörkuðu upplagi :-)
    knús, Gunnur

     

Post a Comment

<< Home