Guðbjörg Arnardóttir

Friday, October 27, 2006

Komin heim

Ég varð ekki eftir í Köben eins og ætla má af bloggleti. Ferðin var rosalega vel heppnuð, stíft prógram og komumst við yfir ótrúlega margt. Ég gerði grín að því að þetta hefðu verið hálfgerðar þrælabúðir fyrir tengdapabba því við löbbuðum alveg ótrúlega mikið en við höfðum sömuleiðis öll gaman af þvi. Í vikunni hefur það verið hið hversdagslega líf ríkjandi með ýmsum verkefnum. Eitt og annað framundan um helgina, ætli við reynum ekki eitthvað að kíkja á héraðsvöku og annað menningarlegt. Annars vona ég að helgin verði ykkur góð.
Ef þið viljið þá er hér smá linkur á frétt, verð að monta mig smá af Frey. Það er að opna ný deild á leikskólanum og stakk hann upp á nafninu Trölladeild og var sú tillaga fyrir valinu. http://www.leikskolinn.is/heklukot/
Af því að veðrið er að sýna mátt sig og litbrigði og við þreytumst seint á því að kenna veðrinu um hitt og þetta sem úrskeiðis fer hjá okkur langar mig að enda hér á smá bæn sem ég fann í bænabók barnanna.
Þegar rignir
bið ég um sólskin.
Þegar er heitt
dreymir mig um snjó.
Þegar vindurinn blæs
óska ég að það væri logn.
Samt elska ég þytinn í vindinum.
Og þess vegna, góði Guð,
bið ég þig:
Veldu veður eins og þú telur best
fyrir leik okkar og störf,
fyrir ánægjudaga
og hvíldarnætur.

Wednesday, October 18, 2006

Til kóngsins Köben

Já, það þarf oft ekki mikinn tíma til að skipuleggja hlutina. Ætluðum í smá frí í nóvember en svo fyrir nokkru gátum við ekki beðið og erum á leið til Kaupmannahafnar á morgun. Helgarferð frá fimmtudegi fram á mánudag. Við förum hjónin og tökum Frey með okkur ásamt tengdapabba. Þetta verður örugglega rosalega fínt og gaman, hlakka mikið til. Planið er hrekkjavökuþema í Tivoli, dýragarður, heimsækja námshestana Ými og Kristínu og Atla, ásamt fleiri uppákomum. Að ógleymdu H&M sem ég ætla að gleyma mér í einhverja stund. Annars heyrði ég frá Elfu systir sem var þar í sumar og hitti mann sem fylgdi þar konu sinni eftir og sagði að H&M gengi meðal karlmanna undir heitinu Helvíti og Martröð. Já, já þeir um það!
Jæja, ferðasagan eftir helgi. Túbbinn bíður kaldur eftir mér í Köben.

Thursday, October 12, 2006

Sætir saman


Svona er kærleikurinn í sveitinni og öll dýrin í skóginum vinir.
Allt gott að frétta, enn ein vikan við það að fljúga á braut. Við skelltum okkur í heimsókn í Austurhlíð í rokinu í gær. Nú er það blíðan sem brosir mót deginum í dag.

Friday, October 06, 2006

Vikan og helgin

Vikan hefur liðið hratt enda í mörg horn að líta. Á mánudagsmorgun fórum við prestarnar í Rangárvallaprófastdæmi í Vatnaskóg ásamt fermingarbörnum okkar og tveimur fylgdarkonum. Þetta var frábærlega vel heppnuð ferð og mikið gaman hjá öllum. Þessir krakkar voru algerir englar og spennandi að hitta þau í vetur, kynnast þeim og fræða.
Í vikunni hef ég líka reynt að hitta hana Kollu mína sem nú er stödd á landinu. Síðar í dag verður gleðistund í Selfosskirkju þar sem ég fæ þann heiður að skíra strákinn hennar og Arnars, hlakka til. Sunnudagurinn er þétt setin og þau sem þyrstir í kirkjusókn geta mætt í Oddakirkju í messu kl. 11 eða Þykkvabæjarkirkju í kvöldguðsþjónustu með léttu yfirbragði kl 20:30.
Bless og góða helgi!