Guðbjörg Arnardóttir

Thursday, September 28, 2006

Haustið lætur í sér heyra

Ég var farin í alvuru að lifa í þeirri von að veðrið yrði sólskinsfagurt fram að jólum. En haustið minnir á sig og lítið við því að gera, þetta er gangur náttúrunnar. Fátt er títt úr Odda annað en að allt gengur sinn vanagang, dýrum og manneskjum heilast vel. Guðbrandur, Brandur Bóbó festir sig enn frekar í hjörtum okkar svo mikið að Hreinn hafði ekki brjóst í sér að henda honum í kjallarann í gærkvöldi, leyfi honum kúra áfram í sófanum. Sjálfsagt að sjá hvað myndi gerast. Ég vaknaði svo í nótt, vön því að fá laumufarþega upp í, nema nú voru þeir tveir. Freyr lætur vita af sér með spörkum og stöku samtali upp úr svefni, en við rumskið uppgötvaði ég að Feyr, þó hann haldi sjálfur að hann sé loðinn undir höndunum, er ekki svo loðinn sem Brandur og pottþétt að hann malar ekki svo angurvært. Bóbó sem búin var að koma sér vel fyrir þétt á milli mín og Freys fékk að fjúka í kjallarann. Þó ég sé alveg búin að sættast við kettina, þá er þetta full mikið.

Monday, September 25, 2006

Sumarauki

Þetta eru frábærir haustdagar sem brosa svona blítt við okkur, alla vega hér um slóðir.
Frábært, notum þá og njótum þeirra.

Thursday, September 21, 2006

Þjóðleikhúsið

Las í morgun grein í Morgunblaðinu þar sem sagt er frá viðgerðum á Þjóðleikhúsinu. Greyis Þjóðleikhúsið sem berst í bökkum því það á ekki peninga til að gera við húsið, samt þarf að gera við það. Þá er það auðvitað gert með stæl, vissulega er erfitt að breyta því sem nú þegar er til staðar. En til þess að gera við einhverja veggi að innan þarf silfursteina og fyrst leit út fyrir að gera þurfti við án þeirra því silfursteina námur á Íslandi er flestar uppurnar eða friðaðar, en nei það fannst staður sem silfursteinum og í þá skal ná, mig langar varla að vita hvað það kostar. Endilega klárum restina af silfursteinunum og klínum þeim á Þjóðleikhúsið. Nú svo er það viðgerðin að utan og þá kemur brátt til Reykjavíkur einhver ósköp af hrafntinnu, úr Hrafntinnuskeri. Er bara allt leyfilegt hvað varðar peninga þegar kemur að útliti sem á sér engin takmörk? Ég ætla ekki í Þjóðleikhúsið á næstunni, ferkar fúl yfir þessu. Endilega ekki draga saman seglin í flottheitunum.

Tuesday, September 12, 2006

Kalli kanína er allur

Já, kanínan flúði aftur og fannst ekki lengi. Svo fannst hún og fékk sitt lokatækifæri en hún var bara ekki tibúin í þessa miklu bindingu við búrið. Eftir að hafa leitað ráða þá fengum við viðvaranir um að hún væri skaðræði fengi hún að ganga frjáls, heyrúllur og aðrar nauðsynjar væru í hættu. Þannig að hann hvílir vonandi í friði, fær að hlaupa um með hinum óþekku kanínunum á himnum.

Monday, September 11, 2006

Ný vika

Tíminn líður hratt, síðasta vika flaug áfram af fullum krafti með mikið af hori og hósti hjá öllum nema Frey sem ekkert virðist bíta á, sjö, níu þrettán. Samt ætti hann að hafa mjög greiðan aðgagn að bakteríunum á leikskólanum en svona er þetta. Hann reyndar óskaði þess heitt og innilega í morgun að vera veikur og þegar pabbi hans mældi hann með 36° stiga sagði Freyr um leið: ,,Sko, ég sagði þér að ég væri veikur'', málið er að hann fékk að leigja Spideman mynd í gær og hugsaði sér gott til glóðarinnar að liggja fyrir framan sjónvarpið í dag.
Helgin var frábær, brúðkaup á laugardag, gifti frænku mína og vinkonu Önnu Valgerði og Tobba hennar. Æðisleg stund, svona athafnir gefa mikið af sér. Veislan í Þingborg alveg frábær. Það versta er að nú í vikunni fljúga hjónin af landi brott með börn og buru til Danmerkur í ár. Óska þeim alls hins besta.
Jæja, verkefnin bíða. Þétt setin vika framundan.

Friday, September 01, 2006

Ekki lengur frjáls

Kalli kanína er komin í búrið sitt aftur og hleypur ekki lengur frjáls um jarðrr, nema hann finni á ný undakomuleið. Hreinn náði honum í pappakassa eftir mikinn eltingarleik. Vildi bara koma þessu á framfæri því áhyggjur af Kalla ullu svefnleysi á Kanarýeyjum. Annars vona ég að helgi verði ykkur ánægjuleg!