Kanína í óskilum
Kalli er strokin!
Já, Kalli strauk úr búrinu sínu, börnin voru búin að beygla netið svo upp við búrið að Kalli gat prílað upp á það og hoppað út frjáls ferða sinna. Þetta er auðvitað smá drama á heimilinu og mest fyrir Snjólf sem hlýtur að sakna Kalla voða mikið. Vonandi að hann láti sjá við búrið á ný áður en dýr merkurinnar ná honum. Annars hefur húsbóndinn mestar áhyggjur af því að hann hafi falið sig í heyrúllunum, nagi sig þar í gegn og valdi ómældum skaða.

1 Comments:
At 4:35 AM,
Anonymous said…
Það er ekki alltaf auðvelt að vera bóndakona.
Post a Comment
<< Home