Börnin af bæ
Þá eru börnin að verða alvön öðrum gæsluaðilum en foreldrunum. Ásrún unir sér vel hjá dagmömmunni, hleypur af stað þegar minnst er á hvort hún vilji ekki fara til hennar. Aðlögunin hjá Frey á leikskólanum gengur hægt og illa, hann er svo feiminn og á svo erfitt með að kynnast krökkum, eða þannig. Hann var fremur móðgaður í gær yfir hversu snemma hann var sóttur og spurði hvort hann fengi ekki að vera lengur í dag. Þetta lítur því allt saman mjög vel út og lofar góðu. Ég veit ég á ekki að vera með samviskubit yfir því en mér finnst þetta rosalega gott. Að komast í vinnuna, sem er svo skemmtileg og leyfa börnunum leika sér annars staðar. Þegar síðar heim er komið er allt andrúmsloft á heimilinu mjög notalegt og við öll njótum þess að vera saman eftir fjarveru dagsins. Ég verð að segja að mér finnst þetta ljúft líf.


1 Comments:
At 6:33 AM,
Anonymous said…
Sonáedda vera kelli mín :)
Post a Comment
<< Home