Gaggalagú
Jæja, það bætist í bústofninn. Við fengum um helgina tvær kanínur sem eru hér hressar í kjallaranum en bíða þess að komast í fjárhúsið þegar búið verður að útbúa handa þeim aðstöðu þar. Þær vöktu ekki litla kátínu barnanna en ég er ekki viss um hversu þakklátar þær eru fyrir börnin, sérstaklega Ásrúnu sem gargar ,,kanía'' og hleypur á eftir þeim og freistast til að ná taki. Á mánudag komu hér mikið góðir gestir, Gúmarinn sjálfur, Gústa, Ragnheiður systir afa og Sigga dóttir hennar. Þau komu hér færandi hendi með þrjár landnámshænur og einn hana, keyptar á Torfastöðum í Fljótshlíð. Svo nú er glatt á hjalla í hænsnakofanum og höfum við nú þegar fengið í hús 4 egg. Svo ef þið eigið leið í Odda verðið þið að rukka um pönnsur að sveitasið sem innihalda egg af staðnum. Hér má því heyra hangól og gaggalagú fyrir því.


2 Comments:
At 10:28 AM,
Anonymous said…
Hljómar vel! Stefni á að koma í pönnsur til þín fyrir jól! (Maður verður að setja sér raunhæf markmið). Kveðja frá Ammríku :)
At 12:36 PM,
Gunnur said…
Ég kem í pönnsur! Hvort það verður fyrir jól eða eftir... best að lofa engu!
Knús frá DK ;o)
Post a Comment
<< Home