Guðbjörg Arnardóttir

Wednesday, July 26, 2006

Þríhyrningur


Við hjónin komust loksins í síðustu viku í okkar árlegu brúðkaupsdagsgöngu. Við leituðum ekki langt yfir skammt enda fer lítið fyrir frítíma þessa dagana svo við stukkum til. Þetta var frábært en Þríhyrningurinn leynir á sér. Ef áhugasöm vilja ksoða myndir þá eru albúmá barnalandsíðu Freys og Ásrúnar, neðst og heitir Þríhyrningur. Ef Martes vill þá væri gaman að koma í nýja sýslu og klífa nýja tinda ;-)
Annars er lífið bara ljúft og flestir á heimilinu hressir nema okkur gengur illa að koma Frey í svefn á kvöldin og síðar okkur sjálfum. Það hlýtur að koma með dekkri kvöldum.

Wednesday, July 19, 2006

Gaggalagú

Jæja, það bætist í bústofninn. Við fengum um helgina tvær kanínur sem eru hér hressar í kjallaranum en bíða þess að komast í fjárhúsið þegar búið verður að útbúa handa þeim aðstöðu þar. Þær vöktu ekki litla kátínu barnanna en ég er ekki viss um hversu þakklátar þær eru fyrir börnin, sérstaklega Ásrúnu sem gargar ,,kanía'' og hleypur á eftir þeim og freistast til að ná taki. Á mánudag komu hér mikið góðir gestir, Gúmarinn sjálfur, Gústa, Ragnheiður systir afa og Sigga dóttir hennar. Þau komu hér færandi hendi með þrjár landnámshænur og einn hana, keyptar á Torfastöðum í Fljótshlíð. Svo nú er glatt á hjalla í hænsnakofanum og höfum við nú þegar fengið í hús 4 egg. Svo ef þið eigið leið í Odda verðið þið að rukka um pönnsur að sveitasið sem innihalda egg af staðnum. Hér má því heyra hangól og gaggalagú fyrir því.

Sunday, July 16, 2006

Helgin liðin

Helgin er liðin og það fljótt. Tónleikarnir tókust vel á fimmtudagskvöld og voru mjög skemmtilegur, það voru um 50 eða 60 manns og það er bara mjög gott. Á fimmtudag fengum við tvær Sesseljur til okkur, önnur með millinafnið Sif. Það var mikil gleði að fá þær í hús. Sú yngri komin í sveitina að hitta Frey og eru mikill munur að hafa leikfélaga. Sú eldri starfaði hér á fullu sem au-pair, mætti með saumavélina og var látin þræla. Hún stytti gardínur, var faglegur ráðgjafi við hvar best færi á að hafa myndir á veggjum og þess á milli þreif hún hitt og þetta sem henni ofbauð ;-) Mömmur eru himnasending, alla vega mín. Mín vegna hefði hún mátt vera lengur en hún var líklega komin með nóg og þurfti þar að auki að halda heim til að taka á móti þreyttum veiðimanni sem búin er að vera í Noregi síðan á fimmtudag. Við hjónin áttum að fá að fara í okkar árlegu göngu í tilefni 6 ára brúðkaupsafmælis og einkum átti að grípa tækifærið meðan au-pairin væri á svæðinu. Við hins vegar sáum ekki fjöllin fyrr en í morgun svo ekkert varð úr göngu, það verður að bíða betri tíma. Nú skarta Rangárvellirnir hins vegar sínu fegursta, sólin skín, varla hreyfir vind, börnin sofnuð, hvað er ég að gera hér við skjáinn ???

Wednesday, July 12, 2006

Hvað með tónleika?

Við höldum áfram að njóta tilverunnar í Odda. Tengdapabbi var hér síðusu nótt við hjónum þurftum að sinna skyldum okkar sem umboðsaðilar veiðiréttarhafa í Odda þ.e. fyrir Hólsá. Þáðum alveg eðal kvöldverð á hestabúgarðinum í Ármóti. Skruppum í kaupstaðaferð í dag, byrgja sig upp í Bónus, frúin kíkti á útsölur. Heimsóttum ömmu Gústu, hittum ömmu Guggu í Þóristúninu hjá afa Ödda og ömmu Sessu. Allt að gerast og meira til.
Langaði bara að nota tækifærið og koma á framfæri spennandi tónleikum í kirkjunni á morgun. Skelli hér inn tilkynningunni sem ég samdi í dag fyrir viðburðadagatalið á kirkjan.is. Kveðjur í bili.

Sumar í Odda

Kirkjukór Odda- og Þykkvabæjarkirkju stendur fyrir tónleikaröð í Oddakirkju með það að markmiði að styrkja og efla menningarlíf á staðnum. Þetta er annað sumarið sem kórinn stendur að slíkri tónleikaröð og þykir hafa tekist vel til.
Fimmtudagskvöldið 13. júlí ber yfirskriftina: ,,Trúin, lífið og tilveran.’’ Fram koma Magnea Gunnarsdóttir sópran söngkona, Birgit Myschi spilar á gítar, Nína María Morávek á orgel og Írena Steindórsdóttir á flautu. Kynnir verður Örlygur Benediktsson.
Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og er aðgangseyrir 1000 krónur, innifalið í því eru kaffiveitingar í safnaðarheimili eftir tónleikana. Verið öll hjartanlega velkomin í Odda.

Thursday, July 06, 2006

Langt um liðið

Það er komin tími á blogg myndi ég halda. Við erum komin í Odda og sest hér að, þetta er dásamlegur staður. Kyrrðin alveg toppurinn, börnin sofa sem aldrei fyrr og með þessu áframhaldi þurfum við að útvega okkur vekjaraklukkur, höfum ekki þurft á svoleiðis grip að halda í mjög langan tíma. Það vottar þó sömuleiðis fyrir spennu og sérstaklega hjá unga herramanninum sem einhvern veginn tekst að gera eitthvað af sér á hverjum klukkutíma, stundum mjög meðvitað. Ég hef reynt að koma mér á skrifstofuna á hverjum morgni og reynt að vinna þar eða alla vega vera til staðar. Þess á milli tæmum við pappakassa og keppumst við að koma dótinu fyrir, úff hvað maður nær að safna að sér af hinu og þessu á stuttum tíma. Það er hins vegar nóg eftir og verður líklega meira og minna næstu vikur. Hins vegar pirraði mig í gær þegar ég fann hversu háð ég er orðin netinu, tölvupóstinum mínum og blogginu. Á skrifstofunni er Makki og á slíkt tæki kann ég lítið sem ekkert og minnstu smáatriði verða flókin og tímafrek. Þarf að fá Hrein til mín í heimsókn og kippa hinu og þessu í lag. Hér heima hefur gengið á ýmsu til að koma á netsambandi og þar með pósinum mínum. Þetta tókst í gær en þá höfðum við einhvern veginn komið póstforritinu í skilning um að betra væri að rukka mig um leyniorðið áður ég fæ að lesa póstinn minn. Það man ég ekki þó lífið lægi við og fæ á næstu dögum nýtt sent í pósti. Svo ég les engan tölvupóst. Mér var sama fyrstu dagana en nú finnst mér ég hafi misst samband við umheiminn, hvað maður getur verið firrtur. Hins vegar er ég með netfang á skrifstofunni: oddakirkja@simnet.is Jæja, dagurinn bíður, drífið ykkur út í sólin og gleypum hana með húð og hári loksins þegar hún lætur sjá sig. Njótum blíðunnar ;-)