Guðbjörg Arnardóttir

Wednesday, June 21, 2006

Veðurbarin í sólinni

Sólin er tekin með trompi loks þegar hún lætur sjá sig. Það var grillveisla á Ásheimum í hádeginu, frábær stemning allir í kátu skapi í góða veðrinu. Ég ákvað svo að slá á suð sem búið er að klingja í eyrum mínum síðan um páska held ég bara. Við skelltum okkur því í langþráðan töfra- og ævintýragarð á Stokkseyri ásamt fríðu föruneyti. Börnin skemmtu sér hið besta ég er hins vegar veðurbarin í framan. Því þótt sólin skíni er ekki þar með sagt að blíðunni sé fyrir að fara, alla vega ekki við ströndina, þar skortir ekki vindinn. Við fórum svo líka í fjöruna, komum heim með krabba og skeljar. Framundan er ættarmót um helgina í Fljótshlíðinni, fyrstu tölur bentu til að engin færi á það, allt of mikið að gera en svo hefur öllu verið slegið upp í kæruleysi, vagninn frá tengdó bíður okkar, mamma og pabbi verða í kúlutjaldi og rómantíkin alls ráðandi. Ég hugsaði með mér að draslið hér á heimilinu færi ekki neitt og pappakassarnir hverfa ekki. Það eina sem gerist er að gólfið fær frí frá sandhaugum og drullu, þetta heimili er hræðilega útlítandi og gott að láta sig bara hverfa. Börnin hafa líka virkilega gott af því að hoppast um í útilega fremur en að hanga í kringum stressaða móður sem reynir að koma sem flestu í verk án þess að skili alltaf tilsettum árangri. Annað kvöld eru tónleikar í Oddakirkju eða réttara sagt Matthíasarvaka, Megas, Þórunn Valdimarsdóttir, Guðrún Ásmundsdóttir, kór Oddaprestakalls o.fl. góðir gestir. Mjög spennandi og kíkjum við á það, ég var líka beðin að vera kynnir á samkomunni og geri ég það bara með gleði. Svo líklega verð ég ekkert með lausar hendur fyrir blogg fyrr en eftir helgi. Adios amigos

1 Comments:

  • At 1:32 PM, Anonymous Anonymous said…

    Ánægð að heyra þetta frænka, var búin að heyra að þið væruð hætt við. Við vonandi komust en heilsan á Sölku hefur ekki verið upp á sitt besta hér í Lux, tökum stöðuna við lendingu.....

     

Post a Comment

<< Home