Guðbjörg Arnardóttir

Thursday, June 29, 2006

Tímamótablogg

Ég horfi um öxl, fyrir rúmlega tveimur árum komum við hér í Stekkholtið að skoða og féllum fyrir húsinu, í ágúst 2004 berum við inn kassa af fullum krafti hingað í Stekkholtið. Freyr, bleytir sig í gosbrunninum, kastar í hann steinum, engin leið að koma við hann tauti að það væri ekki í boði, nú hefur þetta að mestu þroskast af honum. Ásrún stækkaði óðum í móðurkviði og ég mátti ekki bera neina kassa, man að suma daga gerði ég allt of mikið en mér lá á að koma mér fyrir. Þessi tvö ár hér hafa verið notaleg, okkur hefur liðið vel og eigum héðan margar góðar minningar. Hlýjustu minningarnar eru líklega síðan í desember 2004 þegar Ásrún bættist í hópinn. Ég væri hins vegar ekki að segja satt ef ég segði að hér hefði mér aldrei liðið betur. Á þessum árum átti ég líka í atökum með sjálfa mig, ég var oft að bíða og leita. Einhvern veginn fannst mér aldrei að þetta yrði okkar framtíðarheimili, kannski var það bara óskhyggja ég veit það ekki. Nú sit ég hér í skrifstofuherberginu, það er að mestu tómt, hillurnar farnir, og ekkert eftir nema skrifborðið, stóllinn og tölvan. Ég slekk á henni á eftir og hún fer í hvíld þar til henni hefur verið fundinn nýr staður. Á morgun löbbum við aftur út með kassana og inn á annað heimili. Það er einhver undarleg tilfinning sem hríslast um mig alla, ég hef líka oft verið innst inni dramadrottning. Öll tímamót kalla fram hjá mér trega, svona er ég á gamlárskvöld, með grátstafinn í kverkunum. En ég er glöð og kassana flyt ég með fögnuði. Börnin mín sofa vært í rúmum sínum, sofa á nýjum stað á morgun. Ég bið Guð að veita þeim hamingju í Odda, ég er viss um að okkur á eftir að líða vel. Ég hlakka vissulega til en auðvitað laumar sér kvíðahnútur í magann af og til. Það er svo undarlegt hvernig lífið getur á stuttum tíma breytt um stefnu og við siglum með, horfum fram sjóndeildarhringinn og ....... ég gæti endalaust haldið áfram og sleppt skáldagyðjunni lausri en skynsemin segir mér að betra sé að komast í rúmið og eiga á morgun svolítið meira af orku. Ég kveð í bili héðan úr Stekkholtinu, við ,,skjáumst'' síðar í Odda.

3 Comments:

  • At 2:40 AM, Anonymous Anonymous said…

    Góða ferð í Odda Gugga mín.
    Vonandi eigið þið eftir að eiga góðar stundir þar.
    Kveðja Stína Gísla

     
  • At 3:41 AM, Anonymous Anonymous said…

    ...Ef ég væri á landinu bæri ég með þér eins marga kassa og ég mögulega gæti út úr stekkholtinu, ekki það sé slæmt hús. Mín tilfinning er bara sú að þetta var bara stærra hús sem þið þurftuð þá en að framtíðar (drauma-heimilið) þitt/ykkar væri fundið, ég var ekki sannfærð. Ásrún fæddist og nýtt heimili hvað.... þið fjölskyldan voruð að stækka og þurftuð meira pláss og það var það sem skipti máli.
    Nú sit ég hér í Luxembourg og bara 10 dagar í að ég verði skorin og nýjast fjölskyldumeðlimur okkar sóttur, þá er ekki laust við að hugurinn leiti meira til Íslands en vanalega og þá sérstaklega til þín. Að vera ekki með þér og vitni að öllum þeim breytingum sem þú ert að takast á við. Þú að taka við nýju starfi um helgina, vígð til prests fyrir 2 vikum og að koma þér fyrir á nýju heimili í annarri sýslu. Að fá lýsingar þeirra sem voru í Skálholti 18. júní voru mjög fallegar, sjá svo nokkara myndir þaðan og svo myndirnar sem þú sendir í gamaldags sendibréfi voru frábærar til að gera sér grein fyrir í huganum hvað væri að gerast í raun og veru hjá þér.
    Gangi þér sem allra best um helgina, flutningum, innsetningu nú og fyrsta embættisverkinu. Hlakka til að koma til ykkar á Odda þegar fer að hausta.
    Þín Kolla

     
  • At 1:15 PM, Blogger Gunnur said…

    Gangi ykkur allt í haginn elsku Gugga mín!
    Hlakka til að fylgjast með lífinu í Odda - skjáumst!

     

Post a Comment

<< Home