Guðbjörg Arnardóttir

Thursday, June 15, 2006

Súkkulaðialdur

Fékk rétt áðan tölvupóst frá Sibbu frænku um að ég gæti reiknað út aldur minn (ekki það að ég vissi hann ekki) með því að skoða eigið súkkulaðiát eða réttara sagt löngun. Ég er nú ekki vön að nenna að lesa svona en þar sem ég var gripin glóðvolg, búin að drösla börnunum í gegnum hádegið, Freyr komin á leikskólann, Ásrún eftir MJÖG mikið brölt sofnuð í vagninum. Framundan er húsið í rúst, andleg hugðarefni og mín fremur þreytt, hitaði mér vatn fyrir grænt te, opnaði skápinn í eldhúsinu, horfði á súkkulaðið og ..... fékk mér. Hvað er annað hægt en að athuga með þennan tölvupóst. Fyrst átti ég að svara hversu oft mig langaði að meðaltali í súkkulaði á viku, mátti ekki segja minna en einn og ekki meira en tíu, ég ætlaði að segja tíu og hefði sagt oftar ef það hefði verið í boði. En svo hugsaði ég kannski þarf ég bara að svara fyrir hvern dag í einu svo ég sló til og valdi 7 sem ég átti að margfalda með 2 = 14, bæta 5 við = 19, margafalda með 50 = 950, ef ég er ekki búin að eiga afmæli á þessu ári bæti ég við 1755 = 2705, draga svo frá fæðingarár mitt = 729, fyrsta talan segir til um hversu oft mig langar í súkkulaði og síðustu tvær segja til um aldur minn heheheheh. Þetta er ótrúlegt en fyrir einhverja stærðfræðisnillinga eflaust ekki. Hvað segir þetta mér, jú ég er 29 ára, sjúk í súkkulaði, læt það stundum eftir mér en fell þess á milli fyrir undarlegum tölvupósti.

2 Comments:

  • At 12:44 PM, Blogger Gunnur said…

    aahahahaha þvílík snilld! Var einmitt komin hálf inn í eldhússkáp í dag... skil ekkert í því hvað verður um allt gúmmilaðið mitt.......!

     
  • At 2:25 PM, Anonymous Anonymous said…

    Við Sif vorum einmitt að úða í okkur hvítu og brúnu súkkulaði eftir grillað kálfakjöt.
    Fyrsti dagur Sif og co í Lux var bara slakur, downtown skoðuð í sól og notóheitum.
    Gleðilega þjóðhátíð.....

     

Post a Comment

<< Home