Gleðilega Þjóðhátíð
Það er komin 17. júní, ég veit það með því að líta á dagatalið og svo vegna þess að Freyr getur spókað sig í nýju þjóðhátíðarfötunum sínum í dag, pollagalla frá 66° norður, hehehe. Ég veit bara hreinlega ekki hvað hefur orðið af sumrinu, það er alveg týnt í rigningunni. Hvaða kvart er þetta annars, það er ekki öll nótt úti enn. Þetta verður öðruvísi dagur en oft áður, við fjölskyldan höldum upp á daginn á Hellu, liggur mikið á að renna saman við Rangæinga. Ég verð með helgistund á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Lundi. Ég treysti Guði fyrir að það fari nokkuð vel, hins vegar veit ég ekki hvernig fer með uppátækið sem á eftir kemur. Ég kom mér í mjúkinn hjá hestamönnum þar á bæ sem fara fyrir skrúðgöngunni og þáði að stíga á bak eftir stundina. Ég slæ enn meira um mig og verð í söðli þar sem ég var búin að ákveða að vera í íslenska búningnum mínum. Hehehe, hvernig haldiði að þetta fari nú allt saman? Hér hræðir fólk mig með því að spyrja hvort ég þurfi ekki að æfa mig og hvort ég hafi nokkurn tíma setið í söðli. Nei, nei, ég hef greinilega síðustu vikur talið mér trú um að mér sé ekkert um megn og við skulum bara sjá til. Það er alla vega vonandi að ég geti mætt óbrotin í vígsluna á morgun.


4 Comments:
At 11:35 AM,
Anonymous said…
Gelðilega Þjóðhátíð!!!!!
Hlakka til að heyra meira frá söðla reiðinni
kkv frá Lúx
At 1:02 PM,
Anonymous said…
Til hamingju með daginn í dag!!! Loksins loksins loksins er draumurinn orðinn að veruleika!!
Húrra fyrir þér!!!
At 1:04 PM,
Anonymous said…
úppps þetta var ásaninna
At 5:26 PM,
Anonymous said…
Ja,hérna, þessi sóknarbörn þín kasta þér aldeilis í djúpu laugina! Og hvurnig fór?????
Kv.Sigga (sérfræðingur í heimilisguðrækni)
Post a Comment
<< Home