Allt í kössum
Það er allt í kössum þessa dagana hjá okkur, við mamma reyndum í gær að byrja að þrífa en það er alveg tvíverknaður. Ég hamaðist við að þrífa einhverja glugga og börnin voru send út á róló með barnapíu. Þegar þau komu inn með sandinn og drulluna um allt var m.a. fyrsta verk Freys að príla í gluggakistunni og ekki leið á löngu þar til við þurftum að ná puttaförum af tandurhreinum gluggum. Niðurstaðan er því sú að hér verður ekkert skeint eða skafið fyrr en börnin verða komin út úr húsi og farin að gera annars staðar skítugt. Vill einhver taka tvö börn í uppeldi svo ég geti haft hreint í kringum mig, heheheh. Nei ég hugsa ég yrði flótt farinn að sakna hamagangsins.
Ættarmótið gekk rosalega vel fyrir sig og var mjög gaman að hitta Núparana. Freyr sló alveg í gegn, í fyrsta lagi aðstoðaði hann ömmu sína við hennar skemmtiatriði og kann Freyr orðið þó nokkuð af bílavísunum frægu frá ömmu Guggu. Þegar skemmtiatriðunum lauk brá Freyr sér inn í tjald til okkar og náði þar í dollu fullu af Freyju blandi. Síðan gekk minn maður um svæðið og á milli tjalda og bauð til sölu sælgæti. Hann var ekkert að skafa af því við fólk að hann væri að safna sér fyrir Hulk kalli. Hann fékk fín viðbrögð því þegar ég mætti honum var dollan tóm og vasarnir fullir af peningum og móðirin alsaklaus hafði ekki hugmynd um athæfði drengsins. Svo á mánudaginn gat minn maður farið í Leikbæ með fulla tösku af klinki og keypt sér Action kall. Þarna er upprennandi viðskiptamaður á ferð.
Jæja, ég ætla að skella í fleiri kassa eða alla koma mér af stað inn í daginn.

2 Comments:
At 11:19 AM,
Anonymous said…
Gott að sonur minn er ekki læs! Við erum í stöðugum rimmum um nauðsyn eða ekki nauðsyn Action kalla.. Samúðarkveðjur í kassa og flutninga, en það er alltaf svo leiðinlegt meðan á því stendur en gott þegar að það er búið:-)
Kv.
Sigga cowboygirl á landsmóti
At 6:39 AM,
Anonymous said…
Sniðugur strákur! Gangi ykkur vel í flutningnum!
Post a Comment
<< Home