Guðbjörg Arnardóttir

Thursday, June 08, 2006

Allt á fullu

Það er í nógu að snúast þessa dagana. Þó ég eigi ekki að taka við fyrr en 1. júlí þá er ég komin af stað með ýmislegt. Ég fór til Reykjavíkur á þriðjudaginn, snérist hitt og þetta og er komin með embættisklæðin, lánuð í bili. Þetta er allt ótrúlega spennandi. Nú er komið á hreint að vígslan verður í Skálholti 18. júní og er það athöfn opin öllum, stór dagur. Tveimur vikum seinna verð ég sett inn í embætti í Oddakirkju sunnudaginn 2. júlí kl 11. Strax sama dag skíri ég í heimahúsi á Hellu og helgina eftir verður hjónavígsla í Oddakirkju. Það verður því engin slökun til að byrja með. Ég er reyndar mjög fegin því það er gaman að byrja á einhverju svona gleðilegu og þurfa heldur ekki að bíða kannski í einhverjar vikur eftir athöfnum. Ég er alveg ótrúlega lítið kvíðin ég er bara svo spennt og hlakka svo til, þetta er svo frábært.
Ég er síðan hægt og rólega að koma okkur í kassa, það er fínt að koma sér að stað því svo verður allt að gerast á sama tíma. Við erum búin að selja húsið og tók það ekki nema um 10 daga, það er ekki meira kreppa en það í þjóðfélaginu, við erum ánægð með söluna, ég bara bjóst ekki við að þetta gengi svona fljótt.
Af enn veraldlegri efnum en framundan er poppstjörnupartý hjá Ung-Gúmmurum á föstudaginn, ég læt ekkert uppi um hver verður mín poppstjarna enda er ég ekki endanlega búin að gera upp hug minn, það fer eftir hvernig gengur að safna ,,proppsi''
Jæja, ég ætla í eitthvað annað núna, veit ekki alveg hvað, það er út mörgu að velja. Hafið það sem allra best mín frábærustu.

2 Comments:

  • At 12:26 PM, Blogger Gunnur said…

    asskoti að vera ekki á landinu núna, hefði svo viljað vera viðstödd vígsluna!
    Til hamingju með þetta alltsaman Gugga mín :-) Þú ert flottust!

     
  • At 3:43 PM, Anonymous Anonymous said…

    Svo ég vitni í unglingahljómsveitina "Rúllandi Steinar" þá myndu villtir hestar ekki halda mér frá Skálholti á sunnudaginn eftir viku! :)

     

Post a Comment

<< Home