Skoðunarkönnun
Já, það er ótrúlegt hvað þeir sækja í mig þessir ungu herramenn frá Kirkju Jesú Krists hinna síðari daga heilögu. Stoppuðu mig eitt sinn á gangi og hlustaði ég á þá með fullri virðingu fyrir þeim og ekkert nema gott um það að segja. Í síðustu viku stoppuðu þeir mig á hjóli en þá var ég í alvuru að flýta mér og gat ekki talað við þá og nú voru þeir hér komnir að gera skoðanakönnun. Heheh, grundvallandi spurningar margar, kannski voru þetta bara útsendarar biskups að kanna trúaraftsöðu leitandi guðfræðinga. Ein spurning var: ,,Trúir þú á Jesú Krist?'' Humm, hvernig skyldi ég nú hafa komið út úr þessari skoðanakönnun? Já, já, þetta eru elskulegir ungir menn, tala orðið ótrúlega góða íslensku og eru mjög hugrakkir að ganga um allt og standa fast á sínu, boða það sem þeir trúa á. En ég setti stopp við að bjóða þeim að hitta fjölskyldu mína og kynna fyrir henni ritin sín. Ég sagðist vera sátt við mína kirkju, þekkti nokkuð til þeirra kenninga væri ekkert að leita eftir neinu nýju. Óskaði þeim góðs gengis og kvaddi fallega. Hvenær skyldi ég svo hitta þá næst?


0 Comments:
Post a Comment
<< Home