Sef vonandi vel
Jæja, þá er að koma sér í háttinn, stefni á að lesa svolítið í bókinni Karitas, er ógurlega spennt og hefði fyrir löngu viljað vera búin en ég bara hef ekki nógan tíma fyrir þess lags fagurbókmenntir í bili. Á morgun er stór dagur, það er viðtal við valnefnd Oddaprestakalls, kl. 20:00 annað kvöld. Allar fallegar hugsanir og kertaljós eru vel þegin. Að öðru leyti er það tvöfaldur skammtur af Maríubænum fyrir nóttina ;-)
Viðtalið leggst annars vel í mig, ég hlakka bara til og verð rosalega fegin þegar það og allt þetta ferli er búið.
Læt í mér heyra síðar.
Góðar stundir mín allra kærustu.
Viðtalið leggst annars vel í mig, ég hlakka bara til og verð rosalega fegin þegar það og allt þetta ferli er búið.
Læt í mér heyra síðar.
Góðar stundir mín allra kærustu.


6 Comments:
At 3:26 AM,
Anonymous said…
Gangi þér rosalega vel, elsku vinkona. Hlakka til að koma í messu hjá þér í Odda :)
At 4:18 AM,
Anonymous said…
Hæ,hæ Gugga :) ég vildi bara rétt kvitta fyrir mig - fann síðuna þína í gegnum Ásu Ninnu síðu ;)
Er búin að hugsa þó nokkrum sinnum til þín síðustu daga - og mun gera áfram ...vona að þegar ég hitti þig næst verðir þú orðin Séra Guðbjörg í Odda ;)
Ég set þig í bænir mínar :D
At 1:55 AM,
Anonymous said…
Innilegar haminjuóskir Gugga mín!
At 5:36 AM,
Anonymous said…
Ég vissi það! Innilega til hamingju, þetta gastu og áttir svo sannarlega skilið :)
Kveðja til ykkar allra.
At 10:05 AM,
Anonymous said…
Til HAMINGJU með embættið :) Flott hjá þér!!
Kveðja frá Hlaðavöllum 5
At 10:06 AM,
Anonymous said…
Úpps gleymdi að setja inn nafnið mitt :)
Post a Comment
<< Home