Notalegur dagur

Þetta var hinn besti dagur fyrir alla fjölskylduna. Setti niður í nokkra kassa í morgun, það er ágætt að fara svona hægt og rólega af stað. Við skelltum okkur svo í lautar- og skógarferð með Steina, Svanhildi og börnum í Þjórsárdal. Rosalega fínt, fengum hið fínasta veður og ótrúlega hlýtt, bjóst við kulda og trekki og þótti mikil bjartsýni að ætla að borða í huggulegheitum úti í náttúrunni. En við þurftum fremur að fækka fötum en hitt, þó allt innan siðsamlegra marka. Eftir skógarferð brunuðum við í Grímsnesið í grillkjöt og grísirnir (þ.e. börnin, ekki grillkjötið) skelltu sér í pottinn með afa sínum. Í Framnesinu vantaði ekki útsýnið og kyrrðina, svo mikið að heimilisfaðirinn er rokinn þangað aftur með prik handa sér og tengdapabba sínum, þeir þóttust sjá bleikjur í löngum röðum sem biðu þess eins að komast á grillið eða pöunnuna, við sjá um hvað setur. Ég bíð eftir að börnin sofni og svo eru það Aðþrengdar eiginkonur sem aldrei klikka.


0 Comments:
Post a Comment
<< Home