Guðbjörg Arnardóttir

Wednesday, May 03, 2006

Mér finnst rigningin góð

Varð að taka út þessa vorstemningu úr fyrri færslunni. Einhver leti í húsmóðurinni, kúrði í stólnum okkar góða áðan og Ásrún líka, erum enn að vakna og koma okkur í einhver verk. Bíð eftir örlítið betri tíð því puttar mínir eru óðum að taka á sig fagurgrænan lit, mig er farið að kítla í að kíkja á beðin, kannski á morgun. Var annars í bílskúrnum í morgun, ætla að kíkja á nokkra kassa sem innihalda ótrúlega margt fróðlegt, er í stuði að henda og um að gera að nýta það. Þarna eru til dæmis tímarit frá sokkabandsárunum sem einhverjir muna eftir úr Grænholtinu á kamrrinum, þau fá að fjúka, nema einhver óski eftir eintökum ;-)
Jæja, áfram með smjörið.

2 Comments:

  • At 8:19 AM, Anonymous Anonymous said…

    Hahaha, ertu kannski líka með póstkortin - þau voru ansi hressandi :-)

     
  • At 12:08 PM, Blogger Gudbjorg said…

    Nei, því miður, veit ekekrt hvað þau lentu, kannski sem betur fer heheh

     

Post a Comment

<< Home