Da Vinci lykillinn
Skellti mér í bíó í gær með mömmu. Þetta er hin ágætasta spennumynd og fannst mér flott hvernig skipt var yfir í söguna inn á milli, sérstaklega þegar gamli tíminn var eins og draugur í nútímanum. Annars bætir myndin engu við bókina svo ef einhverjum leiddist bókin mæli ég ekki með myndinni. Það var bara mjög gaman að þessu og frábært að fara í bíó með mömmu. Ég verð nú að fá að setja eitthvað út á myndina líka. Ég var ekki sátt við persónusköpun Sophie. Mér fannst hún nú tilkomumeiri í bókinni, í myndinni upplifði ég hana eins og hún væri gersamlega ekkert lesin í neinu og þeir karlarnir kepptust við að deila með henni visku sinni og hún alltaf eins algjör api sem vissi ekkert. Þetta fór alla vega í taugarnar á mér. Í annan stað er ég viss um að Dan Brown og framleiðendur þessarar kvikmyndar eru á launaskra franska ríkisins því ég er viss um að mjög áhugasamir flykkjist til Parísar í pílagrímaferðir. Þetta er sem sag fínasta spennumynd, nokkuð trú bókinni, Bara skemmtileg pæling og ég er ánægðust með áhuga fólks á kirkjusögu. Ef kirkjan skipti fólk ekki máli og allt væri þar á niðurleið, þá væri líka öllum sama um þessa mynd/bók og enginn nennti að kippa sér upp við þetta en svo er ekki. Ef einhver ykkar sem þetta lesa eru mjög áhugasöm um bókina, myndina og efnið sem þar er tekið fyrir langar mig að benda ykkur á ummfjallanir um það á vefnum http://tru.is/stikkord/da-vinci-lykillinn Endilega kíkið á það, fulllt af áhugaverðum pistlum. Ég mæli alltaf með að fólk geri sér dagamun og skelli sér í bíó og áfram Selfossbíó, alveg frábært :-)


1 Comments:
At 3:17 PM,
Anonymous said…
Í hinum dreifðu byggðum landsins bíður fólk eftir að DaVinci komi á leigu´na.
En mig hefði grunað Hrein um að hafa stungið lögguna af á traktor og synt yfir Rangá EF þið hefðuð verið flutt;-) En ætli löggan þarna austurfrá sé á hjóli, mér finnst þetta alveg hrikalega fyndið, að það sé hægt að stinga löggu af á traktor. Ekki öll vitleysan eins.
Kv.
Sigga sveitó
Post a Comment
<< Home