Wednesday, May 31, 2006
Skellti mér í bíó í gær með mömmu. Þetta er hin ágætasta spennumynd og fannst mér flott hvernig skipt var yfir í söguna inn á milli, sérstaklega þegar gamli tíminn var eins og draugur í nútímanum. Annars bætir myndin engu við bókina svo ef einhverjum leiddist bókin mæli ég ekki með myndinni. Það var bara mjög gaman að þessu og frábært að fara í bíó með mömmu. Ég verð nú að fá að setja eitthvað út á myndina líka. Ég var ekki sátt við persónusköpun Sophie. Mér fannst hún nú tilkomumeiri í bókinni, í myndinni upplifði ég hana eins og hún væri gersamlega ekkert lesin í neinu og þeir karlarnir kepptust við að deila með henni visku sinni og hún alltaf eins algjör api sem vissi ekkert. Þetta fór alla vega í taugarnar á mér. Í annan stað er ég viss um að Dan Brown og framleiðendur þessarar kvikmyndar eru á launaskra franska ríkisins því ég er viss um að mjög áhugasamir flykkjist til Parísar í pílagrímaferðir. Þetta er sem sag fínasta spennumynd, nokkuð trú bókinni, Bara skemmtileg pæling og ég er ánægðust með áhuga fólks á kirkjusögu. Ef kirkjan skipti fólk ekki máli og allt væri þar á niðurleið, þá væri líka öllum sama um þessa mynd/bók og enginn nennti að kippa sér upp við þetta en svo er ekki. Ef einhver ykkar sem þetta lesa eru mjög áhugasöm um bókina, myndina og efnið sem þar er tekið fyrir langar mig að benda ykkur á ummfjallanir um það á vefnum http://tru.is/stikkord/da-vinci-lykillinn Endilega kíkið á það, fulllt af áhugaverðum pistlum. Ég mæli alltaf með að fólk geri sér dagamun og skelli sér í bíó og áfram Selfossbíó, alveg frábært :-)
Saturday, May 27, 2006
Kosningar
Þá er komið að kosningum, við skulum öll skunda á kjörstað. Mamma kenndi mér það að nýta umfram allt kosningaréttinn, þó ekki nema bara að til mæta. Að öðru leyti ætla ég ekki að vera með neinn áróður og hvað þá loforð. Eigði góðan dag og verum glöð, sátt og sæl hvernig sem fer.
Thursday, May 25, 2006
Notalegur dagur

Þetta var hinn besti dagur fyrir alla fjölskylduna. Setti niður í nokkra kassa í morgun, það er ágætt að fara svona hægt og rólega af stað. Við skelltum okkur svo í lautar- og skógarferð með Steina, Svanhildi og börnum í Þjórsárdal. Rosalega fínt, fengum hið fínasta veður og ótrúlega hlýtt, bjóst við kulda og trekki og þótti mikil bjartsýni að ætla að borða í huggulegheitum úti í náttúrunni. En við þurftum fremur að fækka fötum en hitt, þó allt innan siðsamlegra marka. Eftir skógarferð brunuðum við í Grímsnesið í grillkjöt og grísirnir (þ.e. börnin, ekki grillkjötið) skelltu sér í pottinn með afa sínum. Í Framnesinu vantaði ekki útsýnið og kyrrðina, svo mikið að heimilisfaðirinn er rokinn þangað aftur með prik handa sér og tengdapabba sínum, þeir þóttust sjá bleikjur í löngum röðum sem biðu þess eins að komast á grillið eða pöunnuna, við sjá um hvað setur. Ég bíð eftir að börnin sofni og svo eru það Aðþrengdar eiginkonur sem aldrei klikka.
Monday, May 22, 2006
Til sölu
Við erum að lenda á jörðinni hvað á hverju eftir tíðindin. Fórum í dag í heimsókn að Odda, þetta lofar allt hinu allra besta. Nú er Stekkholtið komið á sölu, alveg hreint fínasta hús, er einhver sem vill kaupa? Það verður spennandi að sjá hvernig okkur gengur að selja.
Að öðru leyti er ótrúlega kuldalegt og ég sem var alveg farin að venjast notalegheitunum en það hlýnar fljótt aftur.
Ég er annars hálf þreytt eftir daginn, ætla að lesa smá, svo er reyndar LOST á eftir, en ég verð að segja að ég er alveg hætt að hlakka til að horfa á þættina. Mér finnst þetta orðið svolítið pirrandi og botninn dottinn mikið til úr spennunni en ég ætla nú að fylgjast með seríunni til enda.
Að öðru leyti er ótrúlega kuldalegt og ég sem var alveg farin að venjast notalegheitunum en það hlýnar fljótt aftur.
Ég er annars hálf þreytt eftir daginn, ætla að lesa smá, svo er reyndar LOST á eftir, en ég verð að segja að ég er alveg hætt að hlakka til að horfa á þættina. Mér finnst þetta orðið svolítið pirrandi og botninn dottinn mikið til úr spennunni en ég ætla nú að fylgjast með seríunni til enda.
Friday, May 19, 2006
Alveg í skýjunum

Ég er alveg í öðrum heimi, himinlifandi og fagnandi yfir tíðindunum. Þetta er svo frábært og við hlökkum svo til.
Ég veit bara eiginlega ekki alveg hvað ég get sagt eða skrifað meira.
Það er eiginlega bara næsta skref að fara hægt og rólega að pakka niður því ég tek við 1. júlí svo hlutirnir gerast hratt.
Ég er svo hamingjusöm. Við ætlum hins vegar fjölskyldan í sumarbústaðinn að ná áttum og skipuleggja næstu vikur. Skellum okkur reyndar í höfuðborgina á Oddastefnu á morgun, á vegum Oddafélagsins. Þar verður m.a. rætt um hvar í heiminum Sæmundur fróði lærði. Þetta verður spennandi og við strax farin að sinna skyldum okkar. Ég þakka ástsamlega allar heillaóskir og kveðjur.
Megið þið eiga góða helgi og Guð blessi ykkur.
Tuesday, May 16, 2006
Sef vonandi vel
Jæja, þá er að koma sér í háttinn, stefni á að lesa svolítið í bókinni Karitas, er ógurlega spennt og hefði fyrir löngu viljað vera búin en ég bara hef ekki nógan tíma fyrir þess lags fagurbókmenntir í bili. Á morgun er stór dagur, það er viðtal við valnefnd Oddaprestakalls, kl. 20:00 annað kvöld. Allar fallegar hugsanir og kertaljós eru vel þegin. Að öðru leyti er það tvöfaldur skammtur af Maríubænum fyrir nóttina ;-)
Viðtalið leggst annars vel í mig, ég hlakka bara til og verð rosalega fegin þegar það og allt þetta ferli er búið.
Læt í mér heyra síðar.
Góðar stundir mín allra kærustu.
Viðtalið leggst annars vel í mig, ég hlakka bara til og verð rosalega fegin þegar það og allt þetta ferli er búið.
Læt í mér heyra síðar.
Góðar stundir mín allra kærustu.
Friday, May 12, 2006
Ótrúleg værð
Það er svo gott þegar yfir loftinu svífur svo notaleg værð, hún er svo góð að ég tíma ekki að sofna.
Samt er ég viss um að hún varðveitist í svefninum, góða nótt og ég óska ykkur hinnar sömu værðar.
Samt er ég viss um að hún varðveitist í svefninum, góða nótt og ég óska ykkur hinnar sömu værðar.
Wednesday, May 10, 2006
Skoðunarkönnun
Já, það er ótrúlegt hvað þeir sækja í mig þessir ungu herramenn frá Kirkju Jesú Krists hinna síðari daga heilögu. Stoppuðu mig eitt sinn á gangi og hlustaði ég á þá með fullri virðingu fyrir þeim og ekkert nema gott um það að segja. Í síðustu viku stoppuðu þeir mig á hjóli en þá var ég í alvuru að flýta mér og gat ekki talað við þá og nú voru þeir hér komnir að gera skoðanakönnun. Heheh, grundvallandi spurningar margar, kannski voru þetta bara útsendarar biskups að kanna trúaraftsöðu leitandi guðfræðinga. Ein spurning var: ,,Trúir þú á Jesú Krist?'' Humm, hvernig skyldi ég nú hafa komið út úr þessari skoðanakönnun? Já, já, þetta eru elskulegir ungir menn, tala orðið ótrúlega góða íslensku og eru mjög hugrakkir að ganga um allt og standa fast á sínu, boða það sem þeir trúa á. En ég setti stopp við að bjóða þeim að hitta fjölskyldu mína og kynna fyrir henni ritin sín. Ég sagðist vera sátt við mína kirkju, þekkti nokkuð til þeirra kenninga væri ekkert að leita eftir neinu nýju. Óskaði þeim góðs gengis og kvaddi fallega. Hvenær skyldi ég svo hitta þá næst?
Flensa í blíðunni
Haldiði að mín hafi ekki bara gripið í flensu á þessu fallegu sumardögum. Ég náði þó mánudegi og hélt hreinlega um kvöldið að hafi fengið vægan sólsting eftir útiveru og erfiði í garðinum. En nei, ég lá fyrir í allan gærdag, gat varla lyft höfði frá koddanum með þennan lík höfuðverkinn og aðra verki. En hvað um að ég er öll að braggast núna, sé fram að fara út úr húsi á morgun en þá kannski er mesta blíðan á enda en hvað um það allt sumarið er framundan. Fyrir flensuna hef ég átt frábæra daga í garðinum, beðin hrein og ónei, það eru komnir mormónar eð dingla hvað á ég að gera?
Wednesday, May 03, 2006
Mér finnst rigningin góð
Varð að taka út þessa vorstemningu úr fyrri færslunni. Einhver leti í húsmóðurinni, kúrði í stólnum okkar góða áðan og Ásrún líka, erum enn að vakna og koma okkur í einhver verk. Bíð eftir örlítið betri tíð því puttar mínir eru óðum að taka á sig fagurgrænan lit, mig er farið að kítla í að kíkja á beðin, kannski á morgun. Var annars í bílskúrnum í morgun, ætla að kíkja á nokkra kassa sem innihalda ótrúlega margt fróðlegt, er í stuði að henda og um að gera að nýta það. Þarna eru til dæmis tímarit frá sokkabandsárunum sem einhverjir muna eftir úr Grænholtinu á kamrrinum, þau fá að fjúka, nema einhver óski eftir eintökum ;-)
Jæja, áfram með smjörið.
Jæja, áfram með smjörið.

