Mánudagur
Þá er komin mánudagur enn á ný. Helgin leið fljótt og örugglega eins og flestar helgar. Á föstudaginn var ég komin með sýkingu í augunn, ekki við öðru að búast enda allir fjölskyldumeðlimir nema ég búin að vera með þetta. Það er allt að koma þó er augun enn eins ég hafi setið að sumbli hálfa nóttina, sem er svo fjarri lagi enda sofnuð fyrir ellefu bæði kvöld helgarinnar. Síðasti sunnudagaskólinn var á sunnudaginn og nú er ég kominí frí með allt mitt starf í kirkjunni, augljós merki vorsins. Að öðru leyti bíð ég eins og þú Sigga eftir auglýsingunni, sem hlýtur nú að fara að birtast ;-)
Eigiði góða vinnuviku!
Eigiði góða vinnuviku!


1 Comments:
At 11:16 AM,
Anonymous said…
Elsku "lambið" sa´auglýsinguna í Mogganum í dag þú færð hlýja og góða strauma úr Austurhlíðinni...tutu
Post a Comment
<< Home