Guðbjörg Arnardóttir

Monday, April 24, 2006

Hvítt vor

Alhvít jörð blasti við mér um hálf sjö í morgun, ég kippti mér svo sem ekkert upp við það. Freyr hins vegar var mjög hissa þegar hann fór á fætur og spurði: ,,Hva! Af hverju er snjór þegar það er vor?'' Já, það er nú það. Ég þykist nú ekkert svekkt yfir þessu en ég viðurkenni að notalegra hefði verið að vakna við vorið eins og Ronja Ræningjadóttir, jörðin alhvít af anímónum sem heilsuðu brosandi. Við fórum sem sagt á Ronju í gær mæðginum og amma Sessa, líka Kolla, Esther Elma og Guðrún amma hennar að ógleymdri Úu okkar. Þetta var alveg frábær sýning og ofsalega gaman, það var ekki laust við að hjartað í hinum fullorðnu tæki ekki síður kipp þegar grádvergarnir mættu á svæðið með rauðglóandi augu. Freyr hefði reyndar frekar viljað hafa þau grænglóandi, við skynjum ekki allt eins. Ég læt hins vegar þessa hvítu jörð ekki slá mig út af laginu því vorlaukarnir standa þetta af sér og vorið er bara rétt að stríða, minna okkur á að meta sig að verðleikum.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home