Gleðilegt sumar
Já, sumarið er mætt og heilsar fallega. Við mæðginin náðum í skottið á skrúðgöngunni í gær og enduðu í skátmessu. Freyr vildi endilega fara í messuna og varð ég glöð við óskum hans. Honum fór reyndar fljótt að leiðast og sá eftir bóninni. Annars var þetta fallegur sumardagur hér og fór fjölskyldan m.a. í göngu og keyptur var ís í brauðformi á línuna. Það er ekki eins sumarlegt í dag en svona er þetta víst.


1 Comments:
At 10:50 AM,
Gunnur said…
Gleðilegt sumar Gugga mín og til hamingju með frumburðinn! Ætlaði svo hrikalega að muna eftir að senda ykkur kveðju þann 17. en svona fer tíminn með mann, flýgur frá manni og maður gleymir stund og stað!
knús í kotið þitt,
Gunnur
Post a Comment
<< Home