Guðbjörg Arnardóttir

Wednesday, March 01, 2006

Öskudagsheimspeki

Öskudagurinn er floginn á brott. Batman "Bekkins" átti góðan dag. Hann fór með vini sínum, Kobba kló og mömmu hans að rölta í nokkrar búðir og syngja, svona rétt að kíkja á stemningu og þótti mjög merkilegt og gaman. Ég var ánægðust með að greinilega er vakning í þjóðfélaginu því Íslandsbanki gaf banana og einhverjir aðrir bankar harðfisk, frábært ;-) Það er síðan strax farið að plana næsta öskudag og ætlar minn maður þá að vera Silvía Nótt, sjáum hvað það endist lengi.
Nú fer fastan við og ekkert múður, eða hvað. Ég ætlaði að setja mér það markmið að minnka sykurneyslu mjög mikið en það tókst þó ekki fullkomlega í dag en kannski seinna. Svo ætla ég að vera dugleg að íhúga lífið og tilveruna og iðka mína trú enn harðar þó ekki á þann hátt að ég berji mig á bakið til blóðs með ísóp. En alltaf má setja sér markmið og ef þau takast ekki þá er að setja sér það markmið að láta það ekki slá sig út af laginu og halda áfram með lífið. Ég ætla að setja hér í tilefni íhugunar tilvitnun í bók sem við erum að lesa fyrir Frey. Þetta er snilldarbók og heitir: "Halló! Er nokkur þarna?" eftir líklega norskan höfund að nafni Jostein Gaarder. Þetta er barnaheimspeki og fjallar um strák sem kynnist strák eða veru af öðru hnetti og saman spjalla þeir um lífið og tilveruna, bera saman hnettina sína og velta fyrir sér þróunarsögu mannskynsins. Já, ég tel vísindi og trú alveg fara saman og hér er þróunarkenningunni ekki hrint undir borð enda myndi það enda með upplausn fjölskyldunnar; líffræðin vs guðfræði en það er aftur annað mál. Þessi tilvitnum úr bókinni hrópaði á mig sem speki um hvernig beri að haga lífinu eins og segli eftir vindum. Finna sinn styrkleika, gefast ekki upp og leita réttra leiða til úrlausnar þeirra verkefni sem lífið krefst af okkur.
" - Þar sem eru brött fjöll er nauðsynlegt að vera duglegur að klifra, hélt Mika áfram. - Á sléttlendi skiptir máli að geta hlaupið. Og þar sem er mikið um rándýr getur verið kostur að vera vondur á bragðið. Enn betra er sjálfsagt að vera eitraður. En allra best er líklega að vera klár í höfðinu." Þar hafiði það, kannski er þetta bara bull í mér en það er eitthvað í þessu sem heillar mig. Finnið ykkar leið í lífinu og njótið þess, fastið, freistist en frelsist !

1 Comments:

  • At 3:38 AM, Anonymous Anonymous said…

    Hæ lambið ,þetta er greinilega mikil speki í þessai bók ,alltaf gott að velta hlutunum aðeins fyrir sér...þú ert nú svo mikill pælari sem er bara gott...
    En hvað með þetta klukk..hvar finn ég það? svo endilega sendu mér emailið þitt...sendu á mumu@simnet.is..
    kveðja úr sveitasæluni
    Rollan

     

Post a Comment

<< Home